Styrkir Bata góðgerðarfélag
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Bata góðgerðarfélagi 23 milljóna króna styrk. Bati rekur áfangaheimili og stuðningsúrræði fyrir einstaklinga sem hafa verið í réttarvörslu og þarfnast stuðnings við að verða virkir þátttakendur í samfélaginu á ný. Félagið þjónar þeim hópi sem hefur vilja og getu til að nýta sér úrræði þar sem veittur er margþættur stuðningur til að styðja þátttakendur út úr vímuefnanotkun og afbrotum á uppbyggilegan hátt.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hefur stutt við Bata frá árinu 2020. Bati rekur tvö Batahús, eitt fyrir karla og eitt fyrir konur, og þar er boðið upp á ýmiss konar aðstoð og stuðning við að byggja upp vímuefnalaust líf. Miðað er við að þátttakendur geti nýtt sér stuðningsúrræði Bata í allt að tvö ár og markmiðið að fólk geti að því loknu staðið á eigin fótum eins og kostur er.
Ýtt er undir virkni í formi endurhæfingar og markmiðið er að einstaklingar fari að því búnu aftur á vinnumarkað og/eða mennti sig. Áhersla er lögð á að fólk efli og styrki félagsleg tengsl og sinni áhugamálum sínum. Jafnframt er áhersla lögð á heilbrigði í víðum skilningi og að þátttakendur bæti tengsl við fjölskyldu sína og samfélagið.
Heildstæð og þverfagleg nálgun
Aðdragandi að stofnun Batahúss var meðal annars skýrsla sem starfshópur á vegum félagsmálaráðuneytisins vann árið 2019. Þar var megináhersla lögð á heildstæða og þverfaglega nálgun í málefnum einstaklinga sem hlotið hafa fangelsisdóm.
- Sjá einnig: Aðstoð fyrir fjölskyldur fanga