Þriðja úttektarskýrsla GRETA um stöðu mansalsmála á Íslandi
GRETA, eftirlitsnefnd Evrópuráðsins með samningi um aðgerðir gegn mansali, hefur birt þriðju úttektarskýrslu sína um Ísland.
Í skýrslunni kemur fram að frá síðustu úttekt GRETA-nefndarinnar um aðgerðir gegn mansali hefur Ísland haldið áfram að þróa lagaumgjörð til að takast á við mansalsmál og mótað nýja stefnu í aðgerðum gegn mansali. Lagabreyting var gerð á mansalsákvæði almennra hegningarlaga þannig að nú tekur ákvæðið til fleiri tegunda misnotkunar, sem er í samræmi við fyrri tilmæli GRETA.
Árið 2019 birti dómsmálaráðuneytið áherslur stjórnvalda í aðgerðum gegn mansali og annars konar hagnýtingu. Dómsmálaráðuneytið ber ábyrgð á eftirfylgd aðgerða en einnig var skipaður sérstakur samráðshópur um aðgerðir gegn mansali sem hefur haft það hlutverk að styðja við og fylgjast með aðgerðum stjórnvalda.
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra
„Með þátttöku Íslands í samningnum um aðgerðir gegn mansali hefur Ísland undirgengist reglulegt eftirlit alþjóðlegra eftirlitsaðila með mansali. Á grunni þessarar skýrslu mun ég hrinda af stað vinnu við nýja aðgerðaáætlun til að mæta þeim athugasemdum sem koma fram í skýrslunni og ljúka vinnu við þær aðgerðir sem enn er ólokið í núgildandi áætlun. Þá hyggjast ráðherrar ríkisstjórnarinnar auka samstarf ráðuneyta enda er mansal ekki einkamálefni eins ráðuneytis. Gott samstarf og samvinnu þarf til í baráttunni gegn mansali. Það er viðvarandi verkefni hverrar þjóðar að berjast gegn mansali og mikilvægt að sofna ekki á verðinum.”
Þriðja úttektarskýrslan
Áherslan í þessari þriðju úttektarlotu samningsins er á aðgengi þolenda mansals að skilvirkum úrræðum og réttarkerfinu. Í skýrslunni er því farið vandlega í saumana á því hvernig íslenskum stjórnvöldum hefur tekist að hrinda í framkvæmd ákvæðum samningsins sem tengjast innleiðingu á ríkum skyldum aðildarríkja hans til að koma á fót tilteknum úrræðum og hvernig málsmeðferð mansalsmála er háttað. GRETA hvetur íslensk stjórnvöld auk þess til að tryggja að löggæslustofnanir hafi nægilegt fjármagn til að tryggja skjót og viðeigandi viðbrögð í öllum mögulegum tegundum mansalsmála.
Enn fremur hvetur GRETA íslensk stjórnvöld til að samþykkja sérstakt lagaákvæði um refsileysi þolenda mansals, sem hafa verið þvinguð út í brotastarfsemi, eða að þróa sérstakar leiðbeiningar fyrir lögreglumenn og saksóknara sem miða að því að fella niður saksókn í slíkum málum.
GRETA hefur áhyggjur af þeim takmarkaða árangri sem Ísland hefur náð frá síðustu úttekt í baráttunni gegn vinnumansali. GRETA brýnir íslensk yfirvöld til þess að hvetja lögreglumenn, vinnueftirlitsmenn, félagasamtök og aðra viðeigandi aðila til að sýna aukið frumkvæði í að finna þolendur vinnumansals og tryggja að heimildir og úrræði vinnueftirlits standi undir því að leggja sitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir og upplýsa mansalsmál á vinnumarkaði.
Að mati GRETA skortir enn formlegar verklagsreglur sem skilgreina hlutverk og ábyrgð allra viðkomandi faghópa. GRETA hvetur íslensk yfirvöld til að setja á laggirnar formlegt tilvísunarkerfi fyrir allt landið sem skilgreinir verklag og hlutverk allra framlínuaðila sem kunna að komast í snertingu við þolendur mansals.
Skýrslan dregur fram nokkra vankanta í baráttunni gegn mansali barna, þar á meðal mikið vinnuálag barnaverndarþjónustu og skort á viðeigandi þjálfun í mansali barna fyrir starfsfólk hennar. GRETA skorar á íslensk stjórnvöld að grípa til aðgerða til að bæta úr þessum annmörkum, einkum með því að koma á skýru verklagi varðandi það að greina börn sem eru hugsanlega þolendur mansals.
Úttektarferli og skýrslubirting
Þriðja úttekt GRETA á Íslandi hófst 29. apríl 2022 þegar íslensk stjórnvöld fengu sendan ítarlegan spurningalista m.a. með spurningum um megináherslur úttektarinnar um aðgengi þolenda mansals að skilvirkum úrræðum og réttarkerfinu. Úttektarheimsókn fór fram í nóvember 2022. Fyrstu drög að skýrslu voru samþykkt á 47. fundi GRETA nefndarinnar í mars 2023. Íslenskum stjórnvöldum var veittur frestur til að koma með athugasemdir og lokaskýrslan var samþykkt á 48. fundi GRETA í júní 2023 og tekur mið af aðstæðum á Íslandi til 30. júní 2023.
Þriðja úttektarskýrsla GRETA um aðgerðir íslenskra stjórnvalda gegn mansali (PDF)