Tilnefningar Íslands til verðlauna Norðurlandaráðs 2023
Verðlaun Norðurlandaráðs verða afhent í Ósló í kvöld. Alls eru 54 verk, verkefni og listamenn tilnefnd að þessu sinni. Verðlaunin eru veitt í tengslum við 75.þing Norðurlandaráðs í Noregi þar sem ráðherrar og þingmenn frá öllum Norðurlöndunum koma saman.
Á verðlaununum er tilnefnt fyrir umhverfismál, bókmenntir, barna- og unglingabókmenntir, kvikmyndir og tónlist.
Íslenskar tilnefningar til verðlaunanna í ár eru:
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Ljósgildran eftir Guðna Elísson. Skáldsaga, Lesstofan, 2021.
Laus blöð eftir Ragnar Helga Ólafsson. Ljóðabók, Bjartur, 2021.
Barna- og unglingabókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Kollhnís, Arndís Þórarinsdóttir. Barnabók, Mál og menning, 2022.
Eldgos, Rán Flygenring. Myndabók, Angústúra, 2022.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs
Á ferð með mömmu eftir leikstjórann og handritshöfundinn Hilmar Oddsson. Myndin var framleidd af Hlín Jóhannesdóttur.
Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs
Elfa Rún Kristinsdóttir
Sigur Rós
Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs
Rauði krossinn á Íslandi
Náið menningarsamstarf Norðurlanda
„Þessi verðlaun eru mikilvæg viðurkenning á öflugri menningu sem blómstrar á Norðurlöndunum. Ég er mjög stolt af fulltrúum Íslands í ár og hlakka mikið til að vera viðstödd verðlaunaafhendinguna og fagna öllu því hæfileikaríka fólki sem tilnefnt er í ár,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs á síðasta ári hlaut íslenska myndin Dýrið eftir leikstjórann og handritshöfundinn Valdimar Jóhannsson, handritshöfundinn Sjón og framleiðendurna Hrönn Kristinsdóttur og Söru Nassim.
Tilkynnt verður um handhafa verðlauna Norðurlandaráðs 2023 í beinni útsendingu frá Óperunni í Ósló. Á meðal þeirra sem afhenda verðlaunin verða norsku krónprinshjónin, leikkonan Maria Bonnevie og menningarmálaráðherra Noregs, Lubna Jaffery.
Verðlaun Norðurlandaráðs eiga þátt í að auka sýnileika hins nána menningarsamstarfs Norðurlanda. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á norrænum bókmenntum, tungumálum, kvikmyndum og tónlist.