Finnur Bjarnason hefur verið ráðinn verkefnisstjóri vegna stofnunar þjóðaróperu
Finnur er menntaður í óperusöng og hefur lokið meistaragráðu í menningarstjórnun frá Bifröst með hæstu einkunn. Hann var um árabil fastráðinn söngvari við Komische Oper í Þýskalandi og hefur sem atvinnumaður og einsöngvari einstaka reynslu. Eftir nám á Bifröst hefur Finnur lagt stund á rannsóknir í menningarstjórnun við Bifröst.
Alls sóttu 12 um starfið en einn dró umsókn sína til baka. Það var skoðun undirbúnings- og ráðgjafanefndar vegna stofnunar þjóðaróperu að Finnur Bjarnason uppfyllti best þau skilyrði sem sett voru fram í auglýsingu um starf verkefnisstjóra og var hann talinn standa öðrum umsækjendum framar.