Aukaúthlutun styrks til rannsókna- og þróunarverkefna í nautgriparækt
Matvælaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til þróunarverkefna í nautgriparækt, samkvæmt VIII. kafla reglugerðar nr. 430/2021 um almennan stuðning í landbúnaði. Um er að ræða aukaúthlutun.
Athygli er vakin á að umsóknarfrestur er til 1. desember 2023.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afurð, stafrænu stjórnsýslukerfi matvælaráðuneytisins.
Í nautgriparækt eru styrkhæf þau verkefni sem talið er að styrki íslenska nautgriparækt og fela í sér rannsóknir og þróunarverkefni.
Senda má fyrirspurnir vegna nánari upplýsinga á [email protected]