Hoppa yfir valmynd
21. nóvember 2023 Matvælaráðuneytið

Styrkveitingar til verkefna og viðburða á málefnasviðum ráðherra haustið 2023

Matvælaráðuneytið veitir styrki til verkefna og viðburða á málefnasviðum matvælaráðherra.

Ekki eru veittir styrkir til ríkisstofnana eða sveitarfélaga, einstaklinga, rekstrarstyrkir, ferðastyrkir, styrkir til nefndarsetu eða styrkir til BA/BS, eða meistaraprófa. Þá eru ekki veittir styrkir til bæjarhátíða.

Við úthlutun er m.a. horft til þess hvort verkefnin þyki hafa gildi fyrir starfsemi viðkomandi málaflokks, hvort verkefnið búi yfir sérstöðu eða nýnæmi og hvort markmið og mælikvarðar séu skýrir.

Til að umsókn verði tekin gild skulu henni fylgja eftirtalin gögn:

  1. Upplýsingar um umsækjanda eða umsækjendur.
  2. Upplýsingar um aðra þátttakendur og samstarfsaðila ef einhverjir eru.
  3. Nafn þess sem annast samskipti við ráðuneytið.
  4. Nákvæm lýsing á verkefni, markmiðum þess og þýðingu fyrir umsækjendur og aðra.
  5. Lýsing á því hvernig árangur verkefnis verði metinn.
  6. Tíma- og verkáætlun.
  7. Fjárhagsáætlun þar sem koma m.a. fram upplýsingar um áætlaðan kostnað, tekjur, hlutdeild annarra í kostnaði við verkefnið og styrkfé sem verkefnið hefur hlotið eða hefur sótt um.
  8. Staðfest gögn frá samstarfsaðilum sem og önnur gögn til stuðnings umsókn.

Hver einstakur styrkur getur numið allt að 10% heildarupphæð úthlutana.

Heildarupphæð sem ráðherra hefur til ráðstöfunar haustið 2023 er 10.000.000 kr.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 4. desember 2023, sækja má um hér.

Ráðuneytið mun ekki taka til umfjöllunar umsóknir sem berast utan auglýsts tímafrests eða sem berast eftir öðrum leiðum en í gegnum eyðublaðavef Stjórnarráðsins.

Óska má eftir nánari upplýsingum um styrkina gegnum netfangið [email protected].


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta