Greinargerð um vistkerfisnálgun afhent matvælaráðherra
BIODICE, samstarfsvettvangur um líffræðilega fjölbreytni, afhenti í dag Svandísi Svavarsdóttir matvælaráðherra greinargerð frá málþingi um vistkerfisnálgun sem haldið var 21. september sl.
Matvælaráðuneytið fól BIODICE að taka saman helstu niðurstöður og sjónarmið sem fram komu á málþinginu auk tillagna um þau lykilatriði sem eru grundvöllur þess að vistkerfisnálgun sé viðhöfð fyrir mismunandi framleiðslugreinar, sem og aðgerðir við innleiðingu hennar og beitingu.
Í samantektinni kemur m.a. fram að vistkerfisnálgun er alþjóðlegt áherslumál og að Ísland er aðili að mörgum alþjóðasamningum þar sem aðferðafræði og beiting vistkerfisnálgunar er lykilatriði. Jafnframt að skýr samhljómur hafi verið meðal allra aðila sem komu fram á málþinginu um nauðsyn vistkerfisnálgunar og að tímabært sé að innleiða hana hérlendis með skipulegum hætti. Fræðsla og menntun þurfi að fela í sér samtal allra aðila og byggja á reynslu og þekkingu framkvæmdaaðila s.s. bænda, sjómanna og fyrirtækja auk þekkingar sem fengin er með vísindalegum nálgunum.
Samantektin mun nýtast við mótun aðgerðaáætlana fyrir málaflokka ráðuneytisins.