Streymt frá kynningarfundi um eflingu lífrænnar matvælaframleiðslu
Streymt verður frá kynningarfundi um eflingu lífrænnar matvælaframleiðslu sem fer fram fimmtudaginn 30. nóvember í Vox-salnum á Hilton Nordica kl. 10.00.
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun þar kynna drög að aðgerðaáætlun sem hefur verið unnin í matvælaráðuneytinu og byggir á tillögum Umhverfisráðgjafar Íslands ehf. Við mótun áætlunarinnar var einnig tekið mið af annarri stefnumótun á málefnasviðinu, áherslum matvælaráðherra og matvælaráðuneytis.
Að lokinni kynningu ráðherra mun Bryndís Eiríksdóttir, sérfræðingur á skrifstofu landbúnaðar fara nánar yfir helstu tillögur áætlunarinnar sem taka mið af annarri stefnumótun íslenskra stjórnvalda og styðjast við sambærilega stefnumótun á hinum Norðurlöndunum og á vettvangi Evrópusambandsins.
Efling lífrænnar framleiðslu hérlendis er liður í því að styrkja samkeppnisstöðu Íslands gagnvart nágrannalöndunum og um leið samkeppnisstöðu innlendrar matvælaframleiðslu gagnvart innflutningi.
Áætlunin verður einnig birt á samráðsgátt stjórnvalda. Þar geta hagaðilar og almenningur komið athugasemdum á framfæri.
Streymi frá kynningu verður aðgengilegt hér.