Hoppa yfir valmynd
18. desember 2023 Heilbrigðisráðuneytið

Starfshópur um almenna líknarmeðferð á hjúkrunarheimilum

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að vinna að framgangi líknarmeðferðar á hjúkrunarheimili og setja viðmið um þjónustuna. Vinna hópsins verður byggð á aðgerðaáætlun um líknarmeðferð til ársins 2025 sem kveður á um að líknarmeðferð skuli vera í boði fyrir allt heimilisfólk hjúkrunarheimila sem þarf á henni að halda.

Hópnum er sérstaklega ætlað að fjalla um fjóra þætti aðgerðaáætlunarinnar. Þeir eru:

  • Að stuðla að virkri teymisvinnu fagstétta áhjúkrunarheimilum um líknarþjónustu, m.a. með skilgreiningu verklags og áherslur um innihald samninga um aðkomu lækna að þjónustunni með þekkingu á almennri líknarmeðferð. (Aðgerð 2.3).
  • Að gera tillögur um leiðir til að efla sérþekkingu fagfólks sem starfar á hjúkrunarheimilum á líknarmeðferð. (Aðgerð 3.3).
  • Að gera tillögur um endurskoðun á kröfulýsingu fyrir hjúkrunarheimili vegna reksturs líknarrýma ásamt tillögum að viðmiðum um innlagnir í líknarrými á hjúkrunarheimilum. (Aðgerð 5.2).
  • Að tryggja gæði líknarþjónustu á hjúkrunarheimilum, m.a. með tillögum um staðlaða verkferla, skilgreiningu viðmiða um mönnun líknarmeðferðar og tillögum að hæfnikröfum og matskvörðum um færni starfsfólks. (Aðgerð 6.2).

Auk þess að fjalla um framantaldar aðgerðir er hópnum einnig falið að skoða aðra þá þætti sem geta stutt við faglega uppbyggingu líknarþjónustu á hjúkrunarheimilum.

Formaður starfshópsins er Svandís Íris Hálfdánardóttir, tilnefnd af Líknarmiðstöð Landspítala. Aðrir fulltrúar eru Anna Sigrún Baldursdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Bjarney Sigurðardóttir og Margrét Guðmundsdóttir, tilnefndar af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, Dóra Björk Jóhannesdóttir, tilnefnd af Líknarmiðstöð Sjúkrahússins á Akureyri, Ólafur Helgi Samúelsson og Þórhildur Kristinsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis og Heiðbjört Ófeigsdóttir, tilnefnd af Sjúkratryggingum Íslands. Starfsmaður hópsins er Hrafnhildur Ýr Erlendsdóttir, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta