Niðurstöður um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2024
Mánudaginn 4. desember 2023 rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á smurostum frá Noregi, fyrir tímabilið janúar – desember 2024, sbr. reglugerð nr. 1177/2023.
Tvö tilboð bárust um innflutning á smurostum frá Noregi, (0406.3000) samtals 12.000 kg. Úthlutað var til tveggja fyrirtækja, en til úthlutunar var 13.000 kg.
Matvælaráðuneytið úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða þeirra:
Smurostar frá Noregi 2024
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
3.000 |
Innnes ehf |
9.000 |
Nathan & Olsen ehf |
Reykjavík, 14. desember 2023.
Matvælaráðuneytinu