Frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun (virkjunarkostir í vindorku) auk þingsályktunartillögu í samráðsgátt
Frumvarpið og þingsályktunartillagan er í samræmi við niðurstöður þriggja manna starfshóps sem skipaður var 11. júlí 2022, til að vinna að þeim markmiðum að einfalda uppbyggingu vindorkuvera til framleiðslu á grænni orku þar sem áhersla er lögð á að þau byggist upp á afmörkuðum svæðum þar sem unnt verði að tryggja afhendingaröryggi og lágmarka umhverfisáhrif, sbr. stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.
Frumvarpið og þingsályktunartillöguna er hægt að nálgast á vefslóðinni: https://samradsgatt.island.is/ og þar er einnig hægt að koma að umsögnum, athugasemdum og ábendingum um málið.