Ísland fjármagnar verkefni gegn fæðingarfistli í Namayingo héraði í Úganda
Íslensk stjórnvöld hafa samþykkt að fjármagna sérstakt verkefni gegn fæðingarfistli í Namayingo-héraði í Úganda í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). Ísland styður nú við svipuð verkefni með UNFPA í öllum samstarfsríkjunum þremur í Afríku.
Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala, og Gift Malunga, yfirmaður UNFPA í Úganda, undirrituðu samning um verkefnið í sendiráði Íslands í Kampala í gær. Það verður unnið í samstarfi við héraðsyfirvöld í Namayingo ásamt frjálsum félagasamtökum með sérþekkingu á málinu. Heildarkostnaður við verkefnið er áætlaður um þrjár milljónir bandaríkjadala yfir þriggja ára tímabil.
Alvarlegt og viðvarandi vandamál
Fæðingarfistill er alvarlegt og viðvarandi vandamál í fátækustu ríkjum heims þar sem algengt er að barnungar stúlkur eignist börn, en kvillinn þekkist varla á Vesturlöndum. Orsök fæðingarfistils er rifa í fæðingavegi, t.d. milli ristils og legganga sem ekki er meðhöndluð. Konur sem þjást af fæðingarfistli eiga því oft erfitt með að hafa stjórn á þvaglátum eða hægðum. Í Úganda er áætlað að á bilinu 75.000 til 100.000 konur og stúlkur þjáist af fæðingarfistli. Á hverju ári bætast við um 1.900 ný tilfelli og er biðtími eftir aðgerð fimm ár. Tíðni þungana meðal unglingsstúlkna í landinu er sú hæsta í Austur-Afríku og hefur aukist á undanförnum árum en unglingsstúlkur eru útsettari fyrir fæðingarfistli sökum þess að hafa ekki náð fullum líkamlegum þroska við barnsburð. Mæðradauði er einnig mikill en ein af hverjum fimm konum í Úganda deyr af barnsförum á unglingsaldri.
Í Namayingo, öðru samstarfshéraða Íslands í Úganda, eignast konur að meðaltali 7,8 börn á lífsleiðinni samanborið við 5,2 börn á landsvísu. Heilbrigðiskerfi héraðsins er mjög ábótavant en enginn fæðingar- eða kvensjúkdómalæknir starfar þar og næsti spítali í sextíu kílómetra fjarlægð. Í héraðinu eru yfir 230 þúsund íbúar.Heildræn nálgun til að takast á við afleiðingarnar
Neikvæð áhrif fæðingarfistils á líf kvenna og stúlkna eru margþætt og verður verkefnið unnið samkvæmt heildrænni nálgun til að takast á við bæði orsakir og afleiðingar fæðingarfistils. Þannig verður lögð áhersla á fyrirbyggjandi aðgerðir sem snúa að vitundarvakningu í samfélaginu og eflingu heilbrigðiskerfisins. Þá verður áhersla lögð á bætta mæðravernd, hugarfarsbreytingu varðandi þunganir unglingsstúlkna og aðgerðir til að draga úr kynferðis- og kynbundnu ofbeldi. Jafnframt verður konum og stúlkum sem þjáðst hafa af fæðingarfistli veitt endurhæfing og stuðningur við að fóta sig í samfélaginu á ný.
Ísland fjármagnar svipuð verkefni með UNFPA í Malaví og Síerra Leóne. Með stuðningi við verkefnið í Úganda leggur Ísland því sitt af mörkum í að berjast gegn fæðingarfistli í öllum tvíhliða samstarfsríkjum sínum á sviði þróunarsamvinnu.
Meginverkefni Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) er að bæta og tryggja kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi, og gegnir stofnunin lykilhlutverki í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.