Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun úr Íþróttasjóði 2024

Mennta- og barnamálaráðherra hefur samþykkt tillögu Íþróttanefndar um úhlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2024. Úthlutað er til 74 verkefna fyrir alls 27,9 milljónir.

Nefndinni bárust alls 179 umsóknir að upphæð rúmlega 250 m.kr. um styrki úr Íþróttasjóði fyrir árið 2024.

Alls voru 114 umsóknir um styrki til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana að upphæð rúmlega 157 m.kr. Styrkumsóknir um fræðslu- og útbreiðsluverkefni voru 54 að upphæð um 62,8 m.kr. og umsóknir vegna íþróttarannsókna voru 11 að upphæð rúmlega 30,5 m.kr.

Nánari upplýsingar eru veittar á vef Rannís sem annast umsýslu sjóðsins fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta