Ísland styður við fæðuöryggi skólabarna með loftslagsverkefni í Úganda
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hefja samstarf við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna á sviði loftslagsmála í Úganda sem jafnframt stuðlar að auknu fæðuöryggi fátækra skólabarna. Orkusparandi eldunaraðstaða verður sett upp í tugum skóla og þúsundir trjáa gróðursett á einu snauðasta svæði landsins.
Hildigunnur Engilbertsdóttir, forstöðumaður sendiráðs Íslands í Kampala, og Abdirahman Meygag, yfirmaður Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme – WFP) í Úganda, undirrituðu samning um fjármögnun verkefnisins í gær, á alþjóðlegum degi menntunar. Nemur heildarupphæðin 300 þúsund bandaríkjadölum, jafnvirði 41 milljónar króna.
Verkefnið miðar að því að draga úr kolefnislosun vegna skólamáltíða með uppsetningu á orkusparandi eldunaraðstöðu í 74 skólum í Karamoja í norðaustanverðu Úganda þar sem 42.000 nemendur stunda nám. Um leið stuðlar verkefnið að auknu fæðuöryggi þar sem bætt eldunaraðstaða er mikilvægur liður í að tryggja börnum næringarríkar skólamáltíðir. Matreiðslufólk í skólum mun einnig fá þjálfun og fræðslu um sjálfbæra matvinnslu og næringarríka og umhverfisvæna matargerð.
Mikilvægt verkefni þar sem þörfin er hvað mest
Fátækt er óvíða meiri í Úganda en á Karamoja-svæðinu. Þrír af hverjum fjórum íbúum lifa við mikla fátækt og vannæring barna er viðvarandi. Það hefur meðal annars þær afleiðingar að skólasókn þeirra er almennt léleg. Þá hefur umhverfi á svæðinu hnignað jafnt og þétt, meðal annars af völdum skógarhöggs vegna kolavinnslu.
Orkusparandi eldunaraðstaða í skólum svæðisins þýðir að helmingi færri tré eru höggvin í eldivið en ella, eða um 24.000 í stað 59.000 á ári hverju. Samhliða bættri aðstöðu verða 400.000 loftslagsþolin akasíu- og dísartré gróðursett í nágrenni við skólana. Þá fá íbúar héraðanna fræðslu um orkusparandi eldhlóðir til heimilisnota með það að markmiði að auka notkun þeirra.
Verkefnið er í samræmi við þróunaráætlun Úganda og stefnu Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu, sérstaklega þeim markmiðum er snúa að umhverfis- og loftslagsmálum. Verkefnið styður jafnframt við markmið um bætta menntun, námsumhverfi og næringu barna.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna er áherslustofnun fyrir mannúðaraðstoð Íslands og er jafnframt samstarfsaðili í heimaræktuðum skólamáltíðum í tvíhliða samstarfslöndunum Malaví og Síerra Leóne. Þá leiðir Ísland ásamt öðrum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna svokallað Skólamáltíðarbandalag.