Styrkir til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum
Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum, þ.e. eðlisfræði, efnafræði og líffræði, á árinu 2024.
Markmið styrkjanna er að fjölga nemendum í stærðfræði og raunvísindum. Heildarfjárhæð styrkja á árinu 2024 er allt að 13 m.kr. og eru styrkirnir veittir til að standa straum af ferðakostnaði vegna þátttöku í keppnunum.
Ef umsóknaraðili hefur áður fengið styrk þá þarf hann að hafa skilað greinargerð um hvernig styrknum var ráðstafað. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir aðra sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.
Umsóknir skulu sendar til [email protected] í síðasta lagi 22. febrúar 2024.
Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Ólafsdóttir hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu: [email protected] / 545-9500.