Samtal um stefnu í málefnum innflytjenda: Næstu fundir
English below / Język polski poniżej / Vinna við stefnu og framtíðarsýn í málefnum innflytjenda er í fullum gangi og verða næstu samráðsfundir haldnir á Suðurnesjum (í Reykjanesbæ) þann 21. febrúar nk. og í Reykjavík 28. febrúar. Lokafundurinn fer síðan fram á Egilsstöðum þann 11. mars. Innflytjendur eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Markmiðið með stefnunni og framtíðarsýninni er að fólk sem sest að hér á landi hafi tækifæri til inngildingar (e. inclusion) og virkrar þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði. Samtal og samráð við íbúa, sérstaklega innflytjendur, er mikilvægt í þessari vinnu. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið býður því til samtals hringinn í kringum landið og eru innflytjendur sem fyrr segir sérstaklega hvattir til að mæta. Hægt er að taka þátt í samráðsfundunum á íslensku, ensku og pólsku. Verið hjartanlega velkomin!
Í nóvember fóru vel heppnaðir fundir fram á Akureyri og Ísafirði og í janúar á Selfossi og í Borgarnesi. Samtalið heldur nú áfram með eftirfarandi fundum:
Suðurnes
- 21. febrúar kl. 17:00, Hljómahöllin
- 21 February at 17:00 / 21 lutego o godz. 17:00, Hljómahöllin (Hjallavegur 2, 260 Njarðvík)
Facebook-viðburður / Facebook-event
Reykjavík
- 28. febrúar kl. 17:00, Hotel Reykjavik Grand (Grand hótel)
- 28 February at 17:00 / 28 lutego o godz. 17:00, Hotel Reykjavik Grand (Sigtún 28, 105 Reykjavík)
Facebook-viðburður / Facebook-event
Egilsstaðir
- 11. mars kl. 17:00, Berjaya Hérað Hótel
- 11 March at 17:00 / 11 marca o godz. 17:00, Berjaya Hérað Hotel (Miðvangur 1-7, 700 Egilsstaðir)
Facebook-viðburður / Facebook-event
Í nóvember síðastliðnum var birt stöðumat í málaflokknum, svokölluð grænbók. Þetta var fyrsta grænbókin í málaflokknum og jafnframt fyrsta grænbókin sem birt er á þremur tungumálum: Íslensku, ensku og pólsku. Í grænbókinni er mat lagt á stöðuna í málefnum innflytjenda og flóttafólks hér á landi auk þess sem áskoranir og tækifæri eru greind til framtíðar.
Í framhaldinu verður unnin hvítbók sem mun fela í sér fyrstu drög að stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks og eru samráðsfundirnir hluti af þeirri vinnu. Í kjölfarið verður unnin tillaga til þingsályktunar um stefnu í málefnum innflytjenda og flóttafólks.
Auk opinna samráðsfunda hafa lokaðir rýnihópar með innflytjendum og flóttafólki fundað hér og þar um landið.
English – Your views matter!
Would you like to participate in the shaping of Iceland’s first policy on the matters of immigrants and refugees? The Ministry of Social Affairs and Labour is currently working on a future vision and invites you to open consultation meetings around the country to hear your views on the most important integration issues affecting you.
The policy aims for better inclusion of immigrants and to increase opportunities to actively participate in society and the labour market. Immigrants are especially encouraged to join the meeting.
Immigrants are especially encouraged to join the meeting. You can participate in the meeting in Icelandic, English and Polish. Everyone welcome!
A status assessment (green paper) which includes suggested key issues for the forthcoming policy on the matters of immigrants and refugees has been published and translated into English.
Polski – Twoja opinia ma znaczenie
Czy chcesz uczestniczyć w kształtowaniu pierwszej polityki Islandii w sprawach imigrantów i uchodźców? Ministerstwo Pracy i Polityki Społecznej pracuje obecnie nad jej przyszłą wersją i zaprasza Cię na otwarte spotkania konsultacyjne odbywające się w całym kraju.
Polityka ma na celu zapewnienie imigrantom możliwości lepszej integracji (włączenia, ang. inclusion) oraz aktywnego uczestnictwa w społeczeństwie.
Do wzięcia udziału w spotkaniu szczególnie zachęcamy więc imigrantów. Spotkanie będzie tłumaczone na język angielski oraz polski. Serdecznie zapraszamy wszystkich do wzięcia udziału!
Na stronie internetowej Ministerstwa Pracy i Polityki Społecznej została opublikowana ocena stanu obecnego sytuacji imigrantów (tzw. zielona księga), która zawiera sugestie kluczowych zagadnień dla przyszłej polityki w sprawach imigrantów i uchodźców.