Opið fyrir umsóknir í verkefninu „Sjálfbær fiskveiði í heilbrigðu hafi“
Norræna rannsóknaráðið (NordForsk), sem er rekið á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, leggur fram fjármagn til verkefnisins. Heildarráðstöfunarfé nemur 40 milljónum norskra króna eða um 518 milljónum íslenskra króna.
Verkefnið samræmist í senn sameiginlegri yfirlýsingu forsætisráðherra Norðurlanda frá 2022 um málefni hafsins og græn orkuskipti og framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar til 2030.
Umsóknarfrestur er til 28. maí n.k.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Norræna rannsóknaráðsins.