Fjarfundir um innleiðingu breytinga á aðalnámskrá leikskóla
Mennta- og barnamálaráðuneyti boðar til opinna fjarfunda um innleiðingu breytinga á köflum 7–10 í aðalnámskrá leikskóla sem kynntar voru í september 2023 og taka gildi í ágúst 2024. Fundirnir verða 16., 17. og 18. apríl 2024 kl. 15–16 á Teams.
Markmið fundanna er að heyra í stjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki leikskóla um reynslu þeirra af innleiðingunni. Rætt verður um hvernig hafi gengið hingað til að vinna með þær breytingar sem gerðar voru og hvort þörf sé á frekari stuðningi til leikskóla við innleiðingu á þessum breytingum.
Lagt er upp með eftirfarandi spurningar:
Hvernig gengur?
- Hvað eru leikskólar komnir langt í innleiðingarferlinu?
- Hvað hefur gengið vel?
- Hvaða vandamál hafa komið upp?
- Jákvæð og/eða neikvæð reynsla af innleiðingarferlinu.
Vantar meira efni á vefinn?
- Eru hugmyndir að efni á vefinn adalnamskra.is til stuðnings við innleiðinguna?
- Eru hugmyndir að námsefni fyrir leikskóla sem styðja við innleiðinguna?
Vantar annars konar stuðning?
- Gæti mennta- og barnamálaráðuneytið eða Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stutt við innleiðinguna með einhverjum hætti – ef svo er þá hvernig?
Annað sem fundarmönnum dettur í hug að gæti stutt við innleiðinguna.
Fjarfundir
Fundirnir verða teknir upp til að auðvelda úrvinnslu – efninu verður eytt að úrvinnslu lokinni og ekki birt með neinum hætti.
- Teams-fundur um innleiðingu breytinga á aðalnámskrá leikskóla 16. apríl
Smelltu hér til að tengjast fundinum - Teams-fundur um innleiðingu breytinga á aðalnámskrá leikskóla 17. apríl
Smelltu hér til að tengjast fundinum - Teams-fundur um innleiðingu breytinga á aðalnámskrá leikskóla 18. apríl
Smelltu hér til að tengjast fundinum