900 milljónir veittar í styrki vegna orkuskipta
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 900 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslags- og orkumála í ár.
Styrkirnir eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum og eru styrkflokkar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að styðja við orkuskipti á landsvísu. Áhersla er lögð á vistvæna orkunýtingu og eru styrkirnir ætlaðir til að styðja við fjölbreytt verkefni sem tengjast sjálfbærri orkunýtingu, svo sem innviði fyrir rafknúin faratæki, raf- og lífeldsneytisframleiðslu og lausnir sem draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.
„Ísland stendur frammi fyrir miklum áskorunum í loftslags- og orkumálum. Styrkir Orkusjóðs eru mikilvægir í því stóra verkefni að að Ísland nái metnaðarfullum loftslagsmarkmiðum sínum og við sem samfélag náum að framkvæma þriðju orkuskiptin,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og hvetur fólk af öllum kynjum til að kynna sér sjóðinn.
Styrkir til verkefna:
Innviðir fyrir rafknúin farartæki, skip og flugvélar:
- Viðbótarkostnaður tengingar raforku til stærri flutnings- og samgöngutækja sbr. Raforkulög nr. 65/2003.
- Notkun við tengipunkta, til dæmis tækja og tól við hafnir til vöru- og/eða fólksflutninga.
Raf- og lífeldsneytisframleiðsla:
- Raf- og lífeldsneytisframleiðsla, að meðtöldum búnaði og tækjum sem þarf til að nýting geti orðið til dæmis áfyllingarstöðvar, þjöppur, lagnir, flutningstæki, bátar og skip.
Lausnir sem draga úr notkun jarðefnaeldsneytis:
- Líforkuver (til dæmis vinnsla úr sorpi), viðarperluframleiðsla, skip/flugvélar og stórar gröfur eða vinnuvélar.
- Orkugeymslur (til dæmis rafhlöður og varmatankar).
- Háhita varmadælur (sem eru sannreynd tækni) með möguleika tengingu við veitur til húshitunar.
- Varmadælur við veitur, til dæmis viðarkynnt varaafl í stað jarðefnaeldsneytis og varmageymslu eftir því sem við á.
- Framleiðsla raforku og varma (til dæmis sólar, vind, lífeldsneyti) sem nýtist beint eða óbeint í stað jarðefnaeldsneytis.
Umsóknarfrestur er til 23. apríl.
Orkusjóður fer með umsjón með auglýsingu og umsýslu styrkjanna. Umsóknir skulu sendar gegnum þjónustugátt Orkustofnunar: gattin.os.is.
Nánari upplýsingar:
Staða og áskoranir í orkumálum