Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hefur störf og verkefni færast til mennta- og barnamálaráðuneytisins
Þann 1. apríl sl. tóku gildi ný lög um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Um er að ræða nýja þjónustu- og þekkingarstofnun sem starfar í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála. Stofnunin þjónustar leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt með áherslu á gæði menntunar og skólaþjónustu.
Með gildistöku laganna var Menntamálastofnun lögð niður og færðust ýmis verkefni yfir til mennta- og barnamálaráðuneytisins. Meðal þeirra verkefna eru:
- Afgreiðsla og útgáfa leyfisbréfa kennara, náms- og starfsráðgjafa og bókasafns- og upplýsingafræðinga.
Sótt er um á eyðublaðavef Stjórnarráðsins
- Veiting undanþága til lausráðninga í kennslustörf.
Sótt er um á Mínum síðum á Ísland.is
- Móttaka tilkynninga um ráðningar kennsluréttindanema.
Tilkynnt er um ráðningu á eyðublaðavef Stjórnarráðsins
- Veiting viðurkenninga til einkaskóla á framhaldsskólastigi.
- Staðfesting þjónustusamninga sjálfstætt rekinna skóla.
- Eftirlit með skólastarfi og ytra mat.
- Ábyrgð á alþjóðlegum verkefnum, t.d. PISA, EURYDICE og TALIS.
Ítarlegri upplýsingar um verkefnin og fyrirkomulag þeirra verða birtar á vef Stjórnarráðsins á næstunni.
Þá verður dreifibréf sent til allra grunn- og framhaldsskóla landsins, skólaskrifstofa og sveitarfélaga þar sem kynntar verða breytingar á afgreiðslu undanþága til kennslustarfa.