Hoppa yfir valmynd
9. apríl 2024

Fundur Velferðarvaktarinnar 9. apríl 2024

67. fundur Velferðarvaktarinnar
haldinn í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu og á Teams

9. apríl 2024, kl. 13.15-14.30.

1. Örkynningar úr baklandinu

2. Kynning á endurskoðun örorkulífeyriskerfisins

  • Jóna Guðný Eyjólfsdóttir, skrifstofustjóri í félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, kynnti frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um endurskoðun örorkulífeyriskerfisins sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Breytingarnar fela í sér bætta þjónustu, mikilvæga hvata til atvinnuþátttöku og bætt kjör með betra og einfaldara greiðslukerfi – sérstaklega fyrir þau sem einungis fá greiðslur frá almannatryggingum eða eru með litlar aðrar tekjur.

    Markmiðið er að bæta afkomu þeirra sem fá greiddan örorkulífeyri, einfalda kerfið, draga úr tekjutengingum, auka hvata til atvinnuþátttöku og gera örorkulífeyriskerfið skilvirkara, gagnsærra og réttlátara. Þá er stuðningur aukinn við fólk meðan á endurhæfingu þess stendur, samvinnu þjónustuaðila komið á og áhersla lögð á að hindra að fólk falli á milli kerfa.

    Vefsíða um breytingarnar

  • Bergþór H. Þórðarson, fulltrúi ÖBÍ réttindasamtaka á fundinum, kynnti sjónarmið samtakanna gagnvart frumvarpinu. Samtökin eru almennt hlynnt breytingum en telja ýmislegt varðandi frumvarpið enn vera óljóst svo taka megi fulla afstöðu til þess.

    Í framhaldinu fóru fram umræður um frumvarpið.

3. Önnur mál

  • Næsti fundur verður haldinn 21. maí.

 

 

 

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta