Hoppa yfir valmynd
28. apríl 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

Allt er hægt á íslensku: sigurvegari í efniskeppni vandamálaráðuneytisins

Ungur og upprennandi kvikmyndagerðarmaður hlaut á dögunum fyrstu verðlaun í efniskeppni vandamálaráðuneytisins. Viðar Már Friðjónsson er 15 ára Hafnfirðingur sem heillaði dómnefnd keppninnar með sínu framlagi – endurgerð og íslenskun atriðis úr bíómyndinni Dune 2.

Myndbandið má sjá hér

Alls bárust rúmlega 160 innsendingar í efniskeppnina sem skipulögð var af hinu nýja „ráðuneyti“ í vetur. Það er menningar- og viðskiptaráðuneytið í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið og forsætisráðuneytið sem stendur að baki verkefninu. Vandamálaráðuneytið fékk til liðs við sig margs konar hæfileikafólk til þess að hvetja sem flest til að gera fjölbreytt samfélagsmiðlaefni á fjölbreyttri íslensku. Þátttakendur í keppninni sýndu og sönnuðu að íslenskan er bæði sprelllifandi og mjög skapandi tungumál og átti dómnefnd keppninnar út töluvert vöndu að ráða.

Umsögn dómnefndar um sigurvegara keppninnar:


„Metnaðarfullt og skemmtilegt myndband þar sem fjölbreyttir hæfileikar þátttakanda njóta sín, auk íslenskrar tungu. Endursköpun flókins kvikmyndaatriðis er leyst með miklu hugmyndaflugi, sköpunarkrafti og natni við smáatriði þar sem öllum brögðum er beitt. Ástríða fyrir viðfangsefninu leynir sér ekki, það er allt hægt á íslensku!“

Viðar Már er þrátt fyrir ungan aldur búin að framleiða þrjár bíómyndir ásamt vinum sínum. Sú fyrsta var sýnd í Bæjarbíói í Hafnafirði, sú næsta á YouTube og stefna þeir félagar á að koma þeirri þriðju einnig í sýningu í Bæjarbíói. „Við vinirnir erum að gera þætti núna. Ætli ég noti ekki eitthvað af peningunum í það verkefni og setji svo eitthvað inn á bankabók,” segir Viðar Már sem mætti ásamt foreldrum sínum að taka á móti verðlaunafénu, 300.000 krónum. Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráherra færði Viðari blóm við tilefnið og hvatti hann til dáða bæði í framleiðslu á efni á íslensku og í kvikmyndagerð.

„Það er nákvæmlega þessi framkvæmdagleði og útsjónarsemi sem kemur ungu fólki áfram og lætur drauma rætast. Viðar Már er frábær innblástur fyrir okkur öll og pakkar uppáhaldskvikmyndaatriðinu sínu inn í íslenska umgjörð, bæði með orðum og umhverfi. Ég efast ekki um að hann rétt að byrja sína vegferð í kvikmyndagerð og fagna því að hún sé á íslensku,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

 

Dómnefnd vandamálaráðuneytisins að þessu sinni skipuðu:

Rakel Tómasdóttir, hönnuður og listakona
Saga Garðarsdóttir, leikkona og handritshöfundur
Birna Rún Einarsdóttir, leikkona og samfélagsmiðlastjarna
Ágúst Beinteinn Einarsson, tónlistamaður og umboðsmaður

Dómnefndin valdi auk sigurvegarans 10 aðra þátttakendur/hópa sem fá sérstaka viðurkenningu fyrir sínar innsendingar og í forsvari fyrir þau eru:

Alda Örvarsdóttir
Axel Sturla Grétarsson
Ragna Sigurþóra Hólm Halldórsdóttir
Heiðdís Tómasardóttir
Bríet Sóley Valgeirsdóttir, Þyrí Úlfsdóttir og Viktoría Dalitso Þráinsdóttir (sendu inn saman)
Orri Guðmundsson
Birta Gunnarsdóttir
Katrín Lea Daðadóttir
Sólon Thorberg Helgason
Ísabella Lena Borgarsdóttir

 

Ráðuneytisstjórar verkefnisins í ár voru þau Sunneva Einars og Patrekur Jamie. 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta