Hoppa yfir valmynd
30. apríl 2024 Dómsmálaráðuneytið

Birna Ágústsdóttir sett sýslumaður á Vesturlandi

Dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi, frá 1. júní nk. til og með 31. maí 2025. Tilefni setningarinnar er beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti.

Í ljósi þess að nú stendur yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð er að þeirri vinnu verður ekki lokið fyrir 1. júní 2024, var sú ákvörðun tekin að setja Birnu Ágústsdóttur tímabundið til að gegna embættinu á Vesturlandi til viðbótar við eigið embætti á Norðurlandi vestra. Birna mun því gegna báðum embættunum á framangreindu tímabili.

Sú ákvörðun að setja sýslumenn tímabundið yfir fleiri en eitt embætti í stað þess að skipa nýjan til fimm ára, er tekin vegna þeirra tímamóta sem sýslumannsembættin standa nú á. Verið er að móta framtíðarstefnu í málefnum sýslumanna og þykir af þeirri ástæðu ekki rétt að taka ákvarðanir til lengri tíma um embættin sem kunna að fara gegn þeirri stefnu. Þannig var Kristín Þórðardóttir, sýslumaðurinn á Suðurlandi, sett tímabundið yfir embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum í október 2023. Þessi tilhögun er einnig í samræmi við þær áherslur ráðherra í málefnum sýslumanna að unnið verði að því að fella niður áhrif umdæmismarka gagnvart almenningi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta