Hoppa yfir valmynd
28. maí 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Úthlutun úr bókasafnasjóði 2024: Glæpafár og útgáfuskrá meðal verkefna

Úthlutun úr bókasafnasjóði fyrir árið 2024 fór fram í Safnahúsinu í gær. Sjóðnum bárust samtals 20 umsóknir frá 11 bókasöfnum og sótt var um tæplega 37 milljónir. Lilja Dögg Alfreðsdóttir  menninga- og viðskiptaráðherra samþykkti tillögu bókasafnaráðs um styrkúthlutun til 12 verkefna en til úthlutunar voru 20 milljónir.

Landsbókasafn - Háskólasafn fær hæsta styrkinn eða 4 milljónir króna til átaksverkefnis um íslenska útgáfuskrá sem nýtast mun öllum bókasöfnum og almenningi landsins. Verkefnið stuðlar að aðgengilegri og sýnilegri upplýsingum um íslenska útgáfu og fellur vel að markmiðum sjóðsins. Næsthæsta styrkinn fær Borgarbókasafn fyrir verkefnið: Glæpafár á Íslandi sem svarar ákalli um áhuga almennings á glæpasagnahefð.

Styrkhafar bókasafnasjóðs 2024

Nafn umsækjanda

Titill

Úthlutuð upphæð í -kr.

Lýsing á verkefni

Amtsbókasafnið á Akureyri

Loftslagskaffi

1.600.000

Loftslagskaffi Íslands er skapandi verkefni sem hefur það að markmiði að auka samstöðu, virðingu, og seiglu einstaklinga og samfélagsins með því að styrkja tengsl fólks við hvort annað, náttúruna og sjálfbæra lifnaðarhætti.

Amtsbókasafnið á Akureyri

Bókaklúbbur ungmenna

170.000

Markmiðið er að efla bókaklúbb ungmenna á safninu. 15 ungmenni í 8.-10. bekk koma á Amtsbókasafnið einu sinni í viku og eru 80 mínútur í senn. Hópurinn spjallar um bækur og vinnur ýmis bókatengd verkefni.

Borgarbókasafn Reykjavíkur

Glæpafár á Íslandi

3.900.000

Glæpafár á Íslandi er heiti á röð viðburða sem Hið íslenska glæpafélag efnir til í samstarfi við almennings-bókasöfn til að fagna 25 ára afmæli félagsins. Viðburðirnir tengjast íslenskum glæpasögum og glæpasagnaritun.

Borgarbókasafn Reykjavíkur

Litla bókasafnið – leggjum grunn að lestraruppeldi

1.000.000

Litla bókasafnið er ný nálgun á farandbókasafni sem kynnir yngstu börnum leikskólanna fyrir almennings-bókasafninu og ævintýraheimi bókanna í gegnum leik. Með Litla bókasafninu fá foreldrar kynningu á safnkosti, starfsemi og þjónustu almennings-bókasafna fyrir yngstu börnin.

Borgarbókasafn Reykjavíkur

Ylfa og Úlfur, lesum allan heiminn!

800.000

Verkefnið “Ylfa og Úlfur, lesum allan heiminn!” er ætlað að efla málþroska og læsi með áherslu á lesskilning hjá börnunum í hverfinu okkar. Markmiðið er að efla lestur nemenda með leikjum og listsköpun, gera lestur enn skemmtilegri og aðgengilegri.

Bókasafn Árborgar

Janoir - glæpsamlegt upphaf á nýju ári!

1.200.000

Janúarmánuður 2025 verður tileinkaður glæpasögum og glæpasagnagerð. Svakalega sögusmiðjan verður með ritsmiðju fyrir börn og afrakstur þeirrar vinnu verður kynntur. Einnig verður kynning á þýddum sakamálabókum eftir íslenska höfunda.

Kópavogsbær

Bókasafnið í fjölmenningarlegu samfélagi

1.800.000

Verkefnið snýr að því að koma betur til móts við þann fjölbreytta hóp fólks sem heimsækir bókasafnið okkar og þar með að virkja innflytjendur betur til þátttöku í "bókasafns-samfélaginu" okkar.

Kópavogsbær

FF röðin - ungmennin í forgrunni

800.000

FF röðin er fyrirlestraröð fyrir foreldra ungmenna og hugsuð sem forvarnir á ýmsum málefnum sem tengjast þroska og uppeldi ungmenna. Fyrirlestraröðin tekur á mikilvægum en á sama tíma viðkvæmum málefnum sem foreldrar eiga stundum erfitt með að ræða og/eða taka á.

Landsbókasafn -Háskólabókasafn

Sérverkefni um Íslenska útgáfuská

4.000.000

Íslensk útgáfuskrá er tölulegt yfirlit yfir útgáfu á Íslandi. Skráin er gefin út af Landsbókasafni Íslands – Háskóla-bókasafni og er birt á vefsíðunni utgafuskra.is. Bæta á skráningu á útgáfuárum, afmarka betur upplýsingar um bækur ætlaðar almenningi og gera gögn um útgáfu fyrir 1999 hæf til birtingar.

Múlaþing

Bókasafnið sem samfélagsmiðja

1.000.000

Þróun bókasafns Héraðsbúa, og í framhaldinu annarra bókasafna í Múlaþingi, sem samfélagsmiðju, þar sem fjölbreyttir hópar geta mæst, átt athvarf og fræðst um allt milli himins og jarðar.

Norræna húsið

Tréð - átak í lestri í gegnum fræðsluefni

2.830.000

Tréð er sýning sem byggir á fræðsluefni Norræna bókagleypisins og er samstarf Borgarbókasafns, Amtsbókasafns Akureyrar og Norræna hússins. Verkefnið er átak í lestri og ýtir undir virka samveru með samræðukveikjum og verkefnum.

Upplýsing,
félag bókasafns- og upplýsinga-fræðinga

Hönnun á rafrænni útgáfu tímaritsins Bókasafnið

900.000

Tímaritið Bókasafnið kom út á prenti fram til ársins 2020. Útgáfan verður færð yfir á rafrænt form og í opnum aðgangi.

 


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum