Hoppa yfir valmynd
30. maí 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir til kennslu grunnnáms í listdansi 2024

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um rekstrarstyrki vegna grunnnáms listdansskóla fyrir skólaárið 20232024. Styrkjunum er ætlað að efla framboð grunnnáms í listdansi. Þeir skólar sem geta sótt um styrk þurfa að kenna listdans samkvæmt aðalnámskrá fyrir listdansskóla. Heildarstyrkfjárhæð er 25.300.000 kr. sem mun skiptast niður eftir heildarfjölda nemenda þeirra skóla sem sækja um styrk og uppfylla fyrrgreint skilyrði.

Með umsókn skal fylgja greinargerð um fyrirkomulag og aðstöðu til kennslu, faglega getu og fjárhagslega stöðu, ásamt nafnalistum með kennitölum nemenda á hverju stigi.

Sótt er um styrk á Mínum síðum Stjórnarráðsins (undir Eyðublöð – Mennta- og barnamálaráðuneytið). Umsóknarfrestur er til og með 19. júní.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum