Hoppa yfir valmynd
31. maí 2024 Forsætisráðuneytið

Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Úkraínuforseta

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu. - myndRegeringskansliet

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra tók í dag þátt í norrænum leiðtogafundi með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, í Stokkhólmi. Við þetta tilefni skrifuðu Bjarni og Zelensky einnig undir tvíhliðasamning landanna um öryggissamstarf og langtímastuðning.

Gestgjafi leiðtogafundarins var Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, en auk Bjarna og Zelensky voru þátttakendur Alexander Stubb, forseti Finnlands, Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, og Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.

Í sameiginlegri yfirlýsingu fundarins ítreka norrænu leiðtogarnir áframhaldandi órofa stuðning Norðurlandanna við Úkraínu. Vísað er til þess að öll Norðurlöndin hafi nú undirritað samninga við Úkraínu um öryggissamstarf, sem sé vitnisburður um staðfastan stuðning og samstöðu með úkraínsku þjóðinni. Vísað er til áframhaldandi styrkingar hernaðargetu, þjálfunar og framlaga tækjabúnaðar, og mannúðaraðstoðar. Norðurlöndin munu áfram styðja við framgang friðaráætlunar Úkraínu, m.a. á komandi leiðtogafundi í Sviss um miðjan júní þar sem fjallað verður um réttlátan og varanlegan frið í Úkraínu.

Þá lýstu norrænu leiðtogarnir yfir stuðningi við Úkraínu á leið sinni að aðild að Atlantshafsbandalaginu. Þannig muni þeir beita sér fyrir árangursríkum leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins síðar í sumar þar sem teknar verði mikilvægar ákvarðanir hvað þetta varðar.

Bjarni átti í dag einnig tvíhliðafund með Zelensky þar sem þeir ræddu um áframhaldandi stuðning Íslands við Úkraínu og undirrituðu samning um öryggissamstarf og langtímastuðning.

Samningurinn rammar inn og formgerir þann stuðning sem Ísland hefur veitt Úkraínu og hyggst veita í samræmi við þingsályktun um stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu 2024-2028 sem samþykkt var á Alþingi 29. apríl sl. Að auki tekur hann mið af sambærilegum samningum vina- og bandalagsþjóða sem þegar hafa verið undirritaðir eða eru á samningsstigi, að teknu tilliti til sérstöðu Íslands sem herlauss ríkis.

„Með þessum samningi erum við að ítreka áframhaldandi stuðning Íslands við Úkraínu. Við berjumst með Úkraínu fyrir frelsi, lýðræði, mannréttindum og réttlátum friði. Um leið tökum við okkur stöðu gegn harðstjórn, kúgun, ofbeldi og stríðsglæpum,“ segir Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.

  • Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu. - mynd
  • Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar, Alexander Stubb, forseti Finnlands, og Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs. - mynd

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum