Hoppa yfir valmynd
31. maí 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Upplýsingar um kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum heilbrigðisráðuneytisins

Heilbrigðisráðuneytið birtir hér upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna.

Í meðfylgjandi töflu má sjá hver þróun kynjahlutfallsins hefur verið í nefndum, ráðum og stjórnum ráðuneytisins undanfarin tíu ár. Á það skal bent að núverandi heilbrigðisráðuneyti tók til starfa 1. janúar 2019 í kjölfar uppskiptingar velferðarráðuneytisins. Upplýsingarnar í töflunni fyrir þann tíma taka til nefnda, ráða og stjórna sem skipaðar hafa verið af heilbrigðisráðherra.

Samtals fjöldi fulltrúa

Ár Konur     Karlar   Heild  Hlutfall kvenna  Hlutfall karla
 2014 155 139  294  52,7%  47,3
 2015 180 158  338  53,3%  46,7 
 2016 172 145  317  54,3%  45,7
 2017 152 115 267 56,9%  43,1 
 2018 195 146  341  57,2% 42,8 
 2019 184 129  313  58,8%  41,2 
 2020 185  145  330  56,1%  43,9 
 2021 188  147  335  56,1%  43,9 
 2022 253  187  440  57,5%  42,5 
 2023 274  180  454  60,4%  39,6 

 

Samtals fjöldi í nýjum nefndum

Ár Konur     Karlar   Heild  Hlutfall kvenna  Hlutfall karla
 2014 57  53  110  51,8%  48,2%
 2015 38  38  76  50,0%  50,0%
 2016 56  41  97  57,7%  42,3%
 2017 35  24  59  59,3%  40,7%
 2018 76  61  137  55,5%  44,5%
 2019 67  48  115  58,3%  41,7%
 2020 84  67  151  55,6%  44,4%
 2021 56  41  97  57,7%  42,3%
 2022  134  96  230  58,3%  41,7%
 2023 86  49  135  63,7%  36,3%

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum