Hoppa yfir valmynd
31. maí 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Vinna formlega hafin við að þróa gæðaviðmið í félagsþjónustu

Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri GEV, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra. - mynd

Vinna við að þróa gæðaviðmið í félagsþjónustu hófst formlega á vinnustofu á vegum Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) í dag. Vinnustofuna sóttu þátttakendur víða af á landinu. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið veitti GEV sérstakt fjármagn fyrr á árinu vegna gæðaviðmiðanna og verða þau unnin á grundvelli bestu mögulegrar þekkingar og í samvinnu við hagaðila.

„Það er verkefni ykkar, sem hafið fjölbreytta reynslu og þekkingu á velferðarþjónustu, að leggja í dag grunn að því að til verði öflug gæðaviðmið til að tryggja réttmæta og örugga velferðarþjónustu til þeirra sem á þurfa að halda þannig að eftirlit með gæðum þjónustunnar verði markvisst og faglegt,“ sagði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, í ávarpi sínu á vinnustofunni.

„Mikilvægt er að hafa öflugt gæðaeftirlit í velferðarþjónustu til að vernda réttindi einstaklinga og tryggja að þau fái réttmæta og örugga þjónustu,“ sagði ráðherra enn fremur.

Af hverju gæðaviðmið?

Í lögum um GEV fer stofnunin með eftirlit með gæðum þjónustu sem veitt er á grundvelli fjölmargra laga. Til að tryggja gott og markvisst eftirlit með gæðum velferðarþjónustu er nauðsynlegt að til staðar séu gæðaviðmið. Í áðurnefndum lögum er því einnig ákvæði um að GEV skuli þróa slík viðmið á grundvelli bestu mögulegrar þekkingar á málaflokkum á verkefnasviði stofnunarinnar. Það er sú vinna sem nú stendur yfir og er ráðgert að gæðaviðmiðin verði tilbúin um mitt næsta ár.

Gæðaviðmiðin eru hugsuð til leiðsagnar fyrir þau sem veita fólki félagslega þjónustu og gagnast eftirlitsaðilum, þjónustuveitendum og notendum þjónustunnar við að meta framkvæmd hennar.

Markmiðið með notkun viðmiðanna er að fylgjast með gæðum og öryggi þjónustunnar og stuðla að því að þeir meginþættir sem metnir eru séu sýnilegir þannig að notendur velferðarþjónustu, stjórnvöld, stjórnendur og starfsmenn geti metið gæði þjónustunnar og tekið ákvarðanir á faglegum og upplýstum grundvelli. Gæðaviðmiðin geta sagt til um það hvort þjónustan sé að skila því sem henni er ætlað að skila og jafnframt hvort þjónustan uppfylli væntingar notenda hennar.

Af vinnustofunni í dag.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum