Hoppa yfir valmynd
7. júní 2024 Dómsmálaráðuneytið

Einkennisklæddar lögreglukonur í 50 ár

Dómsmálaráðherra ávarpaði nýlega samkomu í tilefni þess að um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því að fyrstu einkennisklæddu lögreglukonurnar tóku til starfa hérlendis. Tímamótanna var minnst með veglegu hófi í félagsheimili Lögreglufélags Reykjavíkur og ávarpaði dómsmálaráðherra samkomuna.

Boðið var upp á áhugaverða dagskrá þar sem sögunni voru gerð góð skil. Á meðal ræðumanna var Katrín Þorkelsdóttir, sem var önnur tveggja lögreglukvenna sem þá klæddust einkennisfatnaði í fyrsta sinn, og rifjaði hún upp þennan tíma. Hin lögreglukonan, sem um ræðir, er Dóra Hlín Ingólfsdóttir, sem lést fyrir nokkrum árum, en hún starfaði í lögreglunni um áratugaskeið. Fljótlega bættust fleiri lögreglukonur í hópinn, sem var þó harla lítill í þeim mikla karlaheimi sem lögreglan var í þá daga.

Fyrsta íslenska lögreglukonan var Vilhelmína Þorvaldsdóttir sem var ráðin í kvenlögregluna síðari hluta ársins 1954. Fyrsti dagur einkennisklæddra lögreglukvenna var 30. júní 1974, sama dag og alþingiskosningar fóru fram. Aðdragandinn var alllangur, en rúmlega tíu árum fyrr hafði lögreglustjórinn í Reykjavík, Sigurjón Sigurðsson, rætt um það í yfirstjórn lögreglunnar í Reykjavík að koma á fót einkennisklæddri kvenlögregludeild hjá embættinu. Hann kvað heldur ekki annað koma til greina en að kvenlögreglan hefði aðstöðu algjörlega út af fyrir sig. Sú varð líka raunin árið 1974, en breyttist síðan þegar kvenlögregludeildin hjá lögreglunni í Reykjavík var sameinuð almennri löggæslu þess embættis 11. maí 1976.

Í samkomunni sem haldin var á dögunum sagði dómsmálaráðherra meðal annars:

„Sagan sýnir því að samhliða auknu jafnrétti og fjölbreytileika innan lögreglunnar hefur löggæslan orðið öflugri og þjónusta við almenning betri. Innkoma kvenna í lögregluna hefur ekki einungis stuðlað að jöfnuði heldur einnig aukið skilvirkni og fagmennsku innan stéttarinnar. Konur í lögreglunni hafa sýnt ómetanlega færni, árvekni og staðfestu í að tryggja öryggi landsmanna.
Þegar við horfum til framtíðar er ljóst að hlutverk kvenna í löggæslu verður enn mikilvægara. Fjölbreytileikinn eflir lögregluna og gerir hana betur í stakk búna að takast á við síbreytilegar áskoranir nútímans. Við verðum að tryggja að konur fái áfram stuðning og tækifæri til að vaxa og blómstra í því mikilvæga starfi sem lögreglan er.
Það er minn vilji að efla stöðu kvenna enn frekar, tryggja jöfn tækifæri og stuðla að því að lögreglan verði staður þar sem allar raddir fái að heyrast og allar raddir eru metnar að verðleikum.“


Ragna Bjarnadóttir, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneyti, Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri, Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra og Katrín Þorkelsdóttir.

 

Guðrún Hafsteinsdóttir og Halla Bergþóra Björnsdóttir til endanna en á milli þeirra standa þær Katrín Þorkelsdóttir, Arnþrúður Karlsdóttir, Björg Jóhannesdóttir, Bonnie Laufey Dupuis, Svanhvít Eygló Ingólfsdóttir, Sigrún Ólafsdóttir og Jónína Sigurðardóttir, sem allar hófu störf í lögreglunni á áttunda áratug síðustu aldar.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum