Hoppa yfir valmynd
7. júní 2024 Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Uppbygging Nýs Landspítala stenst kostnaðaráætlanir - fyrsti áfangi uppbyggingarinnar fullfjármagnaður

Framkvæmdir við Nýjan Landspítala - myndMynd: NLSH, dags. 3. maí 2024

Stýrihópur um skipulag framkvæmda við Landspítala og annarra sérhæfðra sjúkrahúsa hefur kynnt heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra uppfærða heildaráætlun Nýs Landspítala ohf. (hér eftir nefnt NLSH). Heildaráætlun NLSH kom síðast út haustið 2022.

Í nýrri heildaráætlun kemur fram að heildaráætlun NLSH standist kostnaðaráætlanir, með einungis 0,6% fráviki. Það er óveruleg hlutfallsleg breyting í ljósi heildarumfangs verkefna NLSH og í ljósi krefjandi aðstæðna á heimsmarkaði. Þá skal einnig bent á að umtalsverðar hækkanir hafa verið á öllum megin vísitölum frá fyrri áætlun. Fylgir breytingin á heildarkostnaðaráætlun NLSH því almennri verðlagsþróun hér á landi frá október 2022 til febrúar 2024.

Uppbygging Landspítala er ein umfangsmesta innviðauppbygging sem farið hefur fram hér á landi. Heildarfjárfestingin dreifist yfir langt uppbyggingartímabil, sem hófst árið 2010 og nær til ársins 2030. 

Nýr meðferðarkjarni sprettur upp

Mikil uppbygging hefur átt sér stað við Hringbraut og nýr meðferðarkjarni sprettur upp. Gert er ráð fyrir að byggingaframkvæmdum ljúki við nýjan meðferðarkjarna í árslok 2027 og í kjölfarið hefst yfirfærslutími þannig að spítalinn geti hafið starfsemi með nýjum tækjakosti og búnaði. Unnið er nú þegar að skipulagningu flutninga með erlendum sérfræðingum.

Undir Hringbrautarverkefni falla meðferðarkjarni, rannsóknahús, bílastæða- og tæknihús, bílakjallari og ýmis stofnkerfi. Auk þess gatna-, jarðvegs- og veituframkvæmdir og sjúkrahótel sem tekið var í notkun 2019. Heildarkostnaðaráætlun meðferðarkjarnans sem er stærsta nýbyggingin eru 72 ma.kr. en um síðustu áramót hafði verið unnið fyrir 22 ma.kr. Kostnaðaráætlun rannsóknahússins er 20,5 ma.kr., bílastæða- og tæknihússins 5,7 ma.kr. og bílakjallarans 2,5 ma.kr. Þá er gert ráð fyrir 9 ma.kr. í stofnkerfi tengt m.a. gatnagerð, jarðvegsframkvæmdum, tengigöngum og varaafli. 

Ný legudeild á Akureyri og nýbygging við Grensás

Heildaráætlun vegna núverandi verkefna NLSH við Hringbraut og annarra verkefna þeim tengdum frá árinu 2024 til ársins 2030 er eftirfarandi, en áætlunin endurspeglar fjármálaáætlun áranna 2025 til 2029:

Verkefni NLSH m.kr. 2024 2025 2026 2027 2028 2029 2030 Samtals
Hringbrautarverkefnið 21.344 18.295 19.380 18.104 5.223 769 276 83.392
Önnur verkefni NLSH 546 1.073 2.537 4.162 18.092 9.773 2.092 38.275
Samtals 21.890 19.369 21.917 22.266 23.315 10.542 2.368 121.667

Áætlanir NLSH fyrir sérhæfðar sjúkrahúsbyggingar utan Hringbrautar liggja einnig fyrir. Um er að ræða nýbyggingu fyrir endurhæfingarþjónustu við Grensás og nýbyggingu til að hýsa legu-, dag- og göngudeildir við Sjúkrahúsið á Akureyri. Áætlun um þessi verkefni er eftirfarandi, en gert er ráð fyrir þessum verkefnum í fjármálaáætlun áranna 2025 til 2029:

Verkefni NLSH m.kr. 2024 2025 2026 2027 2028 2029 2030 Samtals
Sérhæfð sjúkrahúsverkefni 1.187 3.880 4.175 2.983 3.223 27 16 15.492
Samtals 1.187 3.880 4.175 2.983 3.223 27 16 15.492

Allar áætlanir NLSH eru birtar með fyrirvara um heimildir sbr. lög nr. 84/2001 um skipan opinberra framkvæmda og samþykkt fjárlög Alþingis hverju sinni.

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum