Hoppa yfir valmynd
11. júní 2024 Innviðaráðuneytið

Samkomulag um húsnæðisuppbyggingu í Stykkishólmi

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra, Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, og Hermann Jónasson, forstjóri HMS, hafa undirritað samkomulag um að aukið framboð íbúðarhúsnæðis á tímabilinu 2024 – 2029 og fjármagna uppbyggingu á hagkvæmum íbúðum og félagslegu húsnæði í Stykkishólmi.

Samkomulagið byggir á rammasamningi ríkis og sveitarfélaga um aðgerðir í húsnæðismálum, sem gerður var sumarið 2022.

Markmið samkomulagsins við Stykkishólm er að byggðar verði um 60 íbúðir í sveitarfélaginu á næstu fimm árum í samræmi við metna þörf samkvæmt húsnæðisáætlun sveitarfélagsins.  Þar af er gert ráð 18 hagkvæmum íbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði og fimm félagslegum íbúðum. Sveitarfélagið Stykkishólmur er fjórða sveitarfélagið til þess að undirrita slíkt samkomulag.

Áformin eru í samræmi við endurskoðun á húsnæðisáætlun Stykkishólms, sem gerir ráð fyrir að íbúum sveitarfélagins muni fjölga um rúmlega 100 á næstu árum. Sveitarfélagið mun leitast við að tryggja nægjanlegt framboð byggingarhæfra lóða í samræmi við samkomulagið og stefnir að því að úthluta bygghingarhæfum lóðum fyrir 44 íbúðir í ár.

Svandís Svavarsdóttir, innviðaráðherra: “Það er sérstaklega gleðilegt að undirrita þennan samning við Stykkishólm, en þörfin fyrir uppbyggingu húsnæðis er brýn um allt land. Ég fagna því sérstaklega að tæplega þriðjungur þeirra íbúða sem hér um ræðir verði hagkvæmar íbúðir með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.”

Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi: „Stykkishólmur er ört vaxandi sveitarfélag þar sem íbúum hefur verið að fjölga jafnt og þétt á síðustu árum. Fólk sækir í það góða þjónustustig sem er í Stykkishólmi, ekki síst okkar ríkulega íþrótta- og tómstundastarf og okkar rótgrónu mennta- og menningarstofnanir í bland við stórbrotna náttúrufegurð og fallegt bæjarstæði. Þá er á svæðinu áform um margvíslega atvinnuuppbyggingu sem fylgir jafnframt aukin eftirspurn eftir íbúðum. Því fagna ég sérstaklega undirritun þessa samkomulags sem miðar að því að skapa skilyrði til nauðsynlegrar uppbyggingar til að koma til móts við vaxandi íbúafjölda og áhuga fólks á að flytja til okkar. Með undirritun þessa samkomulags er sveitarfélagið einnig að sýna í verki að það vill vera leiðandi þátttakandi í sameiginlegu átaki ríkis og sveitarfélaga um að stórauka framboð fjölbreyttra íbúðakosta til að mæta nauðsynlegri íbúðaþörf, ekki síst til að allir hafi aðgengi að öruggu og góðu húsnæði með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.“

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum