Hoppa yfir valmynd
11. júní 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Vegna netsölu áfengis til neytenda

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur sent lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu erindi vegna netsölu áfengis til neytenda hér á landi. Undanfarið hefur netsala áfengis til neytenda færst nokkuð í aukana og það hefur orðið tilefni til umræðu í samfélaginu, m.a. í tengslum við markmið laga um að stýra aðgengi að áfengi, draga úr skaðlegum áhrifum áfengisneyslu og vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis.

Hinn 5. júní sl. barst ráðuneytinu erindi frá heilbrigðisráðherra þar sem þróun í áfengissölu er sett í samhengi við lög um landlækni og lýðheilsu og við núverandi lýðheilsustefnu stjórnvalda.

Þá hefur ráðuneytið látið vinna lögfræðiálit um lagaumhverfi smásölu áfengis á Íslandi, þar sem gerð er grein fyrir gildandi lagaumhverfi smásölu áfengis á Íslandi og þeim valkostum sem til greina koma varðandi breytingar á því.

Í erindinu og fylgiskjölum þess er bent á að smásala áfengis sé bönnuð öðrum en ÁTVR. Innflutningur til einkanota sæti ekki takmörkunum en meta þurfi hvert tilvik fyrir sig, þ.e. hvort starfsemi seljanda fari í reynd fram erlendis og þannig sé um innflutning að ræða þegar áfengi er selt í netsölu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum