Hoppa yfir valmynd
12. júní 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkir í þágu farsældar barna - umsóknarfrestur framlengdur

Mennta- og barnamálaráðherra auglýsir eftir umsóknum um styrki frá íslenskum félagasamtökum til verkefna sem varða farsæld og samfélagslega virkni, þar á meðal menntun, frístundir, íþróttir, vernd og réttindi barna, í þjónustu við börn og fjölskyldur, m.a. forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir og þjónustu er miðar sérstaklega að börnum í viðkvæmri stöðu og þ.m.t. börnum með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til föstudagsins 21. júní 2024.

Félagasamtök sem hljóta styrki á fjárlögum eða eru með samninga við ráðuneytið eða stofnanir þess, vegna skilgreindra verkefna, geta ekki sótt um styrki af safnliðum fjárlaga fyrir sömu verkefni. Um er að ræða eins skiptis styrki sem eru ætlaðir sem hluti af innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Styrkir eru veittir þeim sem uppfylla skilyrði til að fá styrk samkvæmt mati ráðherra, sjá reglur um styrkveitingar mennta- og barnamálaráðherra. Miðað er við að styrkfjárhæðir séu á bilinu 200.000 kr. til 3.000.000 kr., en í undantekningartilvikum er unnt að veita hærri styrki.

Sótt er um styrk á Mínum síðum á vef Stjórnarráðsins undir Eyðublöð - Mennta- og barnamálaráðuneytið.

Umsókn skulu fylgja upplýsingar um verkefnið, hvernig umsækjandi hyggst vinna verkefnið og hvort það hefur notið styrkja frá öðrum aðilum. Vakin er athygli á því að umsækjandi kann að þurfa að leggja fram frekari upplýsingar, m.a. um faglega hæfni og rekstrarhæfi, samkvæmt leiðbeiningum ráðuneytisins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta