Hoppa yfir valmynd
20. júní 2024 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ný skýrsla kjaratölfræðinefndar

Út er komin vorskýrsla kjaratölfræðinefndar 2024. Í skýrslunni er áhersla lögð á umfjöllun um launaþróun eftir mörkuðum og heildarsamtökum í nýliðinni kjaralotu sem náði til tímabilsins frá nóvember 2022 til janúar 2024 auk umfjöllunar um launastig á árinu 2023, kjarasamninga, efnahagsmál og sérkenni íslensks vinnumarkaðar. 

Í skýrslunni kemur fram að laun á vinnumarkaði hækkuðu að jafnaði um 11,1% í síðustu kjarasamningslotu. Þá var almennt samið um blandaða leið krónutöluhækkana og prósentuhækkana og voru hlutfallshækkanir því að jafnaði meiri hjá hópum þar sem laun eru að meðaltali lægri. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur grunntímakaups, sem best endurspeglar umsamdar launahækkanir í kjarasamningum, um 2,6% í síðustu kjaralotu. Meðalheildarlaun allra fullvinnandi á vinnumarkaði voru 935 þúsund krónur í fyrra. Meðallaun voru hæst hjá ríkinu hvort sem litið er til grunnlauna, reglulegra launa eða heildarlauna en launadreifing er meiri á almenna markaðnum en hjá hinu opinbera.  

Nýir kjarasamningar voru undirritaðir á almennum vinnumarkaði fyrri hluta marsmánaðar með gildistöku frá 1. febrúar 2024 til janúarloka 2028 og segir í skýrslunni að merkja megi áhrif þeirra kjarasamninga í launavísitölu. Líkt og í síðustu samningum var farin blönduð leið krónutöluhækkana og prósentuhækkana auk sérstakra hækkana launataxta. Flestir kjarasamningar á opinberum vinnumarkaði runnu út í lok mars og undirrituðu nokkur aðildarfélög BSRB kjarasamninga í liðinni viku. Þeir samningar eru á sambærilegum nótum og á almenna markaðnum en samningum annarra hópa á opinbera markaðnum er enn ólokið.

Þá segir í skýrslunni að starfandi fólki á íslenskum vinnumarkaði hafi fjölgað hratt síðustu ár samhliða auknum hagvexti. Atvinnuleysi sé nokkuð stöðugt, eftirspurn eftir fólki mikil og enn ríki nokkur spenna á vinnumarkaði þó heldur dragi úr henni. Í alþjóðlegum samanburði séatvinnuleysi lágt og atvinnuþátttaka mikil hér á landi. Vinnutími sé tiltölulega stuttur, meðallaun há og dreifing launa lítil í alþjóðlegum samanburði hér á landi líkt og á hinum Norðurlöndunum. Stéttarfélagsaðild og þekja kjarasamninga sé hér ein sú mesta í heimi.

Á vef kjaratölfræðinefndar má auk þess nálgast ítarlegt talnaefni um launaþróun, launastig og launadreifingu

Um kjaratölfræðinefnd

Kjaratölfræðinefnd (KTN) er samstarfsnefnd ríkis, sveitarfélaga og heildarsamtaka á vinnumarkaði um gerð og hagnýtingu talnaefnis um laun og efnahag til undirbúnings og eftirfylgni með kjarasamningum.

KTN gefur út tvær skýrslur á ári, að vori og hausti og er þetta áttunda skýrsla nefndarinnar. Í nefndinni eiga sæti fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamanna, BSRB, Kennarasambandi Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, forsætisráðuneyti, félags- og vinnumálamálaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, og Hagstofu Íslands.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum