Hoppa yfir valmynd
24. júní 2024 Matvælaráðuneytið

Efla þarf nám í lagareldi og styrkja eftirlitsstofnanir

Í skýrslunni „Lagareldi, mannauður og menntun“ sem Sjávarútvegsmiðstöð Háskólans á Akureyri (SHA) vann fyrir matvælaráðuneytið kemur m.a. fram að efla þurfi nám í lagareldi og samhæfa það öflugu fagháskólanámi sem spanni bæði framhalds- og háskólastig.

Einnig kemur fram að fyrirtæki í lagareldi þurfi að marka sér skýra mannauðsstefnu og
auka þurfi námsframboð þeirra háskóla sem nú þegar bjóða upp á nám í lagareldi á háskólastigi, s.s. Háskólans á Hólum. Færa þurfi námið upp á BS stig og samhæfa framboð annarra háskóla sem bjóða upp á almennt háskólanám í takt við þarfir fiskeldis. Kynna þurfi atvinnugreinina á meðal nemenda í efstu bekkjum grunnskóla, til þess mætti nýta hugmyndafræði Fiskeldisskóla unga fólksins sem nú þegar er starfræktur.

Lagt er til í skýrslunni að fagráð um nám í lagareldi verði stofnað sem samanstandi af m.a. af fulltrúum fyrirtækja í lagareldi, frá ráðuneytum matvæla og menntamála og hagaðilum.
Að auki kemur fram í skýrslunni að tryggja þurfi nægt fjármagn til að eftirlitsstofnanir og aðrar stofnanir sem koma að lagareldi geti ráðið það starfsfólk sem þarf til að stofnanirnar geti sinnt sínum lögbundnu hlutverkum og að starfsfólk viðkomandi stofnana eigi kost á viðbótar- og endurmenntun.

Yfirlit um nám og námsframboð í fiskeldi á Íslandi er að finna í skýrslunni og er það borið saman við Noreg og Færeyjar. Í seinni hluta skýrslunnar er sagt frá niðurstöðum viðhorfskönnunar sem gerð var meðal fyrirtækja í lagareldi og sveitarfélaga þar sem reynt var að leggja mat á þarfir og óskir hvað varðar starfsfólk, menntun og reynslu og aðra þætti sem nauðsynlegir eru til að efla hag fiskeldis á Íslandi.

Skýrsluna má nálgast hér.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum