Hoppa yfir valmynd
24. júní 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Ísland fyrst þjóðríkja til að gefa út kynjað skuldabréf

Ríkissjóður Íslands hefur gefið út kynjað skuldabréf að fjárhæð 50 milljónir evra, jafnvirði um 7,5 milljarða króna. Skuldabréfin bera 3,4% fasta vexti og voru gefin út til 3 ára. Skuldabréfin eru gefin út undir viðauka við sjálfbæran fjármögnunarramma ríkissjóðs um fjármögnun jafnréttisverkefna en ekkert ríki hefur áður gefið út slíkt skuldabréf. Um er að ræða einkaútgáfu til Franklin Templeton, eins stærsta sjóðstýringarfyrirtækis í heimi. Umsjón með útgáfunni var í höndum BNP Paribas.

Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra:

„Kynjaða skuldabréfið er spennandi viðbót við sjálfbæra fjármögnun ríkissjóðs en fyrsta græna skuldabréfið var gefið út fyrr á þessu ári. Með því að vera fyrst ríkja til að gefa út kynjað skuldabréf eru íslensk stjórnvöld að nýta leiðandi stöðu okkar í jafnréttismálum á alþjóðavísu og setja mikilvægt fordæmi fyrir önnur ríki með nýrri aðferð við að virkja fjármálamarkaði og opinber fjármál til að stuðla að jafnrétti kynjanna.“

Kynjuð skuldabréf falla undir sjálfbæra fjármögnun, líkt og græn skuldabréf. Andvirði útgáfunnar verður nýtt til að mæta kostnaði ríkissjóðs vegna aðgerða sem stuðla að kynjajafnrétti. Fyrst og fremst er um að ræða ráðstafanir sem er ætlað að tryggja konum og kvárum í viðkvæmri stöðu félagslega þjónustu og viðunandi lífsskilyrði og svo ráðstafanir sem eru til þess fallnar að draga úr byrði kvenna af ólaunuðum heimilis- og umönnunarstörfum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum