Hoppa yfir valmynd
28. júní 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Faggildingarsvið Hugverkastofunnar – Jákvæð niðurstaða jafningjamats

Frá vinstri: Bryndís Rós Sigurjónsdóttir, Guðrún Rögnvaldardóttir, Hermann Schaufler, Leopoldo Cortez og Sólveig Ingólfsdóttir - mynd

Dagana 17.-21. júní sl. fór fram jafningjamat á starfsemi faggildingarsviðs Hugverkastofunnar á vegum evrópsku faggildingarsamtakanna EA (European co-operation for Accreditation), en slíkt mat er grundvöllur gagnkvæmrar viðurkenningar á faggildingu og samræmismati meðal aðila EA.

Matsmenn frá faggildingarstofnunum Portúgals og Austurríkis heimsóttu faggildingarsviðið og lögðu mat á starfsemi sviðsins, gæðakerfi þess, skjalahald og verkferla, auk þess að vera viðstaddir úttekt sviðsins á einni skoðunarstofu. Á lokafundi með starfsfólki sviðsins föstudaginn 21. júní sem fulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins var viðstaddur, tilkynntu matsmennirnir þá niðurstöðu sína að mæla með áframhaldandi aðild faggildingarsviðsins að samningi EA um gagnkvæma viðurkenningu, enda uppfylli sviðið allar grundvallarkröfur EA hvað varðar faggildingu á skoðunarstofum.

Matsmennirnir bentu jafnframt á nokkur atriði í starfsemi og umgjörð sviðsins sem þarf að lagfæra og verður það verkefni næstu mánaða hjá starfsfólki sviðsins að vinna úr ábendingunum og innleiða og gera áætlun um nauðsynlegar úrbætur, eftir atvikum með aðkomu ráðuneytisins.






Mynd 1
Frá vinstri: Bryndís Rós Sigurjónsdóttir sérfræðingur á faggildingarsviði, Ágúst Þór Jónsson formaður Faggildingarráðs, Sólveig Ingólfsdóttir sviðsstjóri faggildingarsviðs, Hermann Schaufler frá Austurríki, Leopoldo Cortez frá Portúgal, Ingvi Már Pálsson skrifstofustjóri í menningar- og viðskiptaráðuneytinu, Guðrún Rögnvaldardóttir sérfræðingur á faggildingarsviði og Borghildur Erlingsdóttir forstjóri Hugverkastofunnar.


Mynd 2
Frá vinstri: Hermann Schaufler, Leopoldo Cortez og Ingvi Már Pálsson


Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum