Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Einföldun á skilum rekstraraðila á umhverfisupplýsingum, drög að reglugerð í opið samráð

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda drög að breytingu á reglugerð um útstreymisbókhald, nr. 990/2008. Tilgangurinn með breytingunni er að samræma upplýsingar og einfalda rekstraraðilum að standa skil á upplýsingum um losun efna og öðrum umhverfisupplýsingum til stjórnvalda.

Reglugerðin á sér stoð í lögum nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Samkvæmt þeim lögum og reglugerð ESB nr. 166/2006 er rekstraraðilum með starfsemi sem getur mengað gert að skila Umhverfisstofnun upplýsingum um losun tiltekinna efna. Um er að ræða nauðsynlegar upplýsingar fyrir bókhald íslenskra stjórnvalda yfir losun mengandi efna, þar á meðal gróðurhúsalofttegunda, og hráefnanotkun.

Markmið með umræddri reglugerðarbreytingu er að einfaldaða kröfur til skýrslugerðar, til dæmis með því að ekki  verður lengur gerð krafa um endurskoðun skýrslu sem skilað er til Umhverfisstofnunar. Auk þess sem markmiðið er að samþætta betur upplýsingaskil rekstraraðila til stjórnvalda og stuðla að einfaldari stjórnsýslu og samskiptum rekstraraðila við stjórnvöld. Þá eiga breytingarnar að leiða til þess að betri og ítarlegri upplýsingar fáist frá rekstraraðilum sem ber að skila umhverfisupplýsingum. Þannig er stuðlað að því að til verði marktækari upplýsingar um losun og hráefnanotkun í landinu sem standast alþjóðlegar skuldbindingar. Ekki er um að ræða íþyngjandi kröfur gagnvart atvinnulífi þar sem viðkomandi fyrirtæki hafi alla jafna umræddar upplýsingar fyrirliggjandi.

Reglugerðin er liður í framkvæmd aðgerðar G.3 í aðgerðaáætlun Íslands í loftslagsmálum frá 2020 og á að virka sem hvati til umskipta.

Samhliða breytingu á heiti reglugerðarinnar er lagt til að reglugerð nr. 851/2002 um grænt bókhald og reglugerð nr. 244/2009 um skil atvinnurekstrar á upplýsingum um losun gróðurhúsalofttegunda falli úr gildi.

Athygli er vakin á því að frestur til að senda umsögn í samráðsgátt er til 19. ágúst nk.

Reglugerð um umhverfisupplýsingar

 

 


 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum