Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Fjölgun meðferðarrýma í Krýsuvík

Frá undirritun samkomulags heilbrigðisráðuneytisins við Krýsuvíkursamtökin - mynd

Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, ásamt fulltrúa Krýsuvíkursamtakana hafa undirritað samkomulag um fjölgun rýma og aukinn stuðning við meðferðarheimilið Krýsuvík. Samkomulagið kveður á um aukið aðgengi að þjónustunni og fjölgun meðferðarplássa um þriðjung, ásamt því að efla faglegt meðferðarstarf í Krýsuvík.

Árið 2023 voru að jafnaði 22 einstaklingar í meðferð á meðferðarheimilinu í Krýsuvík en með auknum stuðningi fjölgar rýmunum sem verða 29 talsins. Samtökin hafa staðið fyrir framkvæmdum og endurbótum á húsnæði Krýsuvíkur í þeim tilgangi að fjölga rýmum og auka aðgengi að þjónustunni.

Samkomulagið er í samræmi við heilbrigðisstefnu til ársins 2030 um tímanlegt aðgengi að mikilvægri heilbrigðisþjónustu og er liður í aðgerðum stjórnvalda til að sporna við skaða af völdum vímuefna, þar með talið ópíóða sem samþykktar voru í ríkisstjórn í maí 2023. Í tillögum heilbrigðisráðherra var m.a. lagt til að auka aðgengi að fjölbreyttum og gagnreyndum meðferðum við vímuefnavanda.

Krýsuvíkursamtökin voru stofnuð árið 1986 og hafa veitt langtímameðferð fyrir fólk með vímuefnavanda samfleytt frá árinu 1989. Krýsuvík gegnir mikilvægu hlutverki í meðferð einstaklinga með alvarlegan áfengis og vímuefnavanda og undanfarin tvö ár hefur þjónusta meðferðarheimilisins verið efld m.a. með því að bjóða upp á áfallameðferð.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum