Hoppa yfir valmynd
1. júlí 2024 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Nýjar íslenskubrautir fyrir nemendur af erlendum uppruna

Kvennaskólinn í Reykjavík, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ og Menntaskólinn á Ísafirði munu bjóða upp á nýjar íslenskubrautir í haust. Ætlunin er að auka námsframboð fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn. Aukningin fellur vel að heildarsýn ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum og aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu.

Markmið brautanna er að þjálfa nemendur í íslensku máli, menningarfærni og stuðla að félagslegri vellíðan og virkri þátttöku þeirra í samfélaginu. Um tveggja ára nám er að ræða. Við lok náms eiga nemendur að vera undirbúnir fyrir nám í íslenskum framhaldsskólum og búa yfir íslenskukunnáttu sem nýtist jafnt í námi sem og á vinnumarkaði.

Nemendur af erlendum uppruna eru stækkandi nemendahópur í framhaldsskólum landsins. Þessi nemendahópur er fjölbreyttur og kemur frá mismunandi menningarheimum með ólíkan bakgrunn í námi, menningu og tungumálum. Að auki er reynsla nemendanna mjög einstaklingsbundin þegar kemur að lengd búsetu á Íslandi og tækifærum til að læra íslensku til náms og samskipta.

Samhliða auknu námsframboði framhaldsskóla fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn mun stuðningur við skóla stóraukast með þróunarverkefninu Menntun Móttaka Menning (MEMM). Samkomulag um það var undirritað í maí af mennta- og barnamálaráðherra, borgarstjóra og forstjóra nýrrar Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Verkefninu er ætlað að stuðla að inngildingu og virkri þátttöku barna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.

Í gegnum MEMM verkefnið verður byggður upp stuðningur við framhaldsskóla varðandi móttöku og menntun nemenda af erlendum uppruna og lögð áhersla á ráðgjöf, fræðslu og aðgengi að námsefni og gagnlegum verkfærum. Markmiðið er að samræma verklag og byggja upp þekkingu og færni meðal annars með því að nýta þá þekkingu sem skapast hefur á þessu sviði innan sveitarfélaga, framhaldsskóla og fræðasamfélagsins.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum