Hoppa yfir valmynd
3. júlí 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Fjórar ferðir fást nú endurgreiddar vegna heilbrigðisþjónustu innanlands

Fjórar ferðir fást nú endurgreiddar vegna heilbrigðisþjónustu innanlands - myndStjórnarráðið

Almennur réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast við nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári. Reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þessa efnis tók gildi 1. júlí. Í byrjun þessa árs var rétturinn aukinn úr tveimur ferðum í þrjár og nú hefur fjórða ferðin bæst við.

„Þetta er mikilvægt byggðamál sem styður jafnframt það grundvallarmarkmið heilbrigðisstefnu að bæta og jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu, óháð búsetu og efnahag“ segir Willum Þór Þórsson.

Samhliða fjölgun endurgreiddra ferða hefur umsóknarferli Sjúkratrygginga í tengslum við endurgreiðslu ferðakostnaðar verið einfaldað. Til þessa hefur þurft að skila inn læknisvottorði vegna endurgreiðslu ferðakostnaðar en með breytingunni er sú skylda felld niður, svo nú þarf ekki læknisvottorð fyrir endurgreiðslu kostnaðar vegna fjögurra ferða á ári. Sjúkratryggðir einstaklingar þurfa nú eingöngu að leggja fram kvittanir fyrir ferðakostnaði til Sjúkratrygginga og staðfestingu á komu ef um komu á sjúkrahús eða heilbrigðisstofnun er um að ræða. Áfram þarf þó að skila inn læknisvottorði þegar um er að ræða ítrekaðar ferðir vegna alvarlegra sjúkdóma, sbr. 3. og 6. gr. reglugerðarinnar.

Réttur til endurgreiðslu ferðakostnaðar nær til sjúkratryggðra einstaklinga vegna nauðsynlegra ferða eftir þjónustu sem ekki er fyrir hendi í heimabyggð og vegalengd milli staða er 20 km. eða lengri.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum