Hoppa yfir valmynd
5. júlí 2024 Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið

Viljayfirlýsing um uppbyggingu Sementsreits á Akranesi undirrituð

Haraldur Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Willum Þór Þórsson við undirritunina. - mynd

Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í gær ásamt Haraldi Benediktssyni, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu Sementsreits á Akranesi fyrir starfsemi ríkis og sveitarfélagsins.

Jafnframt var undirritað afsal vegna sölu á núverandi húsnæðis við Mánabraut 20 til sveitarfélagsins sem áður hýsti skrifstofur Sementsverksmiðjunnar og var í sameiginlegri eigu ríkisins og Akraneskaupstaðar. Eigninni hefur nú verið afsalað að fullu til sveitarfélagsins.

Fyrir liggur að komið er að miklu viðhaldi á eigninni og að hún þarfnast gagngerrar endurnýjunar en stefnt er að því að á Sementsreitnum rísi bygging sem rúmar ráðhús Akraneskaupstaðar og stofnanir á vegum þess. Þá liggur fyrir að þörf er á að finna nýja skrifstofuaðstöðu fyrir stofnanir ríkisins sem eru með aðsetur á Akranesi og lýsir ríkið yfir áhuga á að leigja aðstöðu í nýrri byggingu við Mánabraut 20. Í forsendum verkefnisins verður jafnframt skoðað hvort fýsilegt séð að koma starfsemi heilsugæslunnar fyrir í því húsnæði sem reist verður á reitnum.

Forsenda þess að af verkefninu verði er að Akraneskaupstað og ríkinu bjóðist ásættanlegt leiguverð í nýju húsnæði. Stefnt er að því að Akraneskaupstaður, í samráði við Framkvæmdasýslu – Ríkiseignir (FSRE), standi að útboði um uppbyggingu á lóðinni við Mánabraut 20 þar sem lögð verður áhersla á að lágmarka kostnað sveitarfélagsins og leiguverð til stofnana ríkisins.

Settur verður á fót sameiginlegur starfshópur sem mun vinna að framgangi verkefnisins auk þarfa- og kostnaðargreiningu.




Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta