Hoppa yfir valmynd
6. júlí 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Aðsetur nýrra stofnana verður á landsbyggðinni

Aðsetur nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar verður á Akureyri, Náttúrufræðistofnunar á Vesturlandi og Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli. 

Aðsetur nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins verður utan höfuðborgarsvæðisins samkvæmt ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Embætti forstjóra nýrra stofnana verða auglýst um helgina og mun forstjóri nýrrar Umhverfis- og orkustofnun hafa aðsetur á Akureyri, forstjóri nýrrar Náttúrufræðistofnunar á Vesturlandi og forstjóri nýrrar Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli. Höfuðstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs verða eftir sem áður á Höfn í Hornafirði, en þær voru færðar þangað árið 2022.

Er markmiðið með staðsetningu aðseturs nýrra stofnana að stuðla að því að starfsfólk starfi í auknum mæli á landsbyggðinni í grennd við viðfangsefnið sem í þessu tilfelli er náttúra landsins, umhverfi og auðlindir.

Alþingi samþykkti í júní lög um nýja Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun.  Umhverfis- og orkustofnun tekur við starfsemi Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar, en  Náttúruverndarstofnun tekur við Vatnajökulsþjóðgarði og starfsemi náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar og taka stofnanirnar til starfa 1. janúar 2025. Áður hafði Alþingi samþykkt að Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn yrðu hluti af Náttúrufræðistofnun Íslands, sem við breytingarnar fékk heitið Náttúrufræðistofnun og tók ný sameinuð stofnun til starfa 1. júlí sl..

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Við höfum lagt á það áherslu að færa störfin nær viðfangsefnum stofnana ráðuneytisins. Við erum þegar búin að færa aðsetur Vatnajökulsþjóðgarðs heim á Hornafjörð og með þessum breytingum stígum við enn stærri skref. Nýjar stofnanir verða öflugri og hagkvæmari einingar sem verða betur í stakk búnar að sinni skyldum sínum gagnvart náttúrunni og fólkinu sem þær þjónusta. Starfstöðvarnar eru þegar víða um land og því góður bragur á því að aðsetur þeirra verði utan höfuðborgarsvæðisins. Það er vert að nefna að fólki verður ekki gert að færa sig frá sínum starfstöðvum. Það er langtíma verkefni að færa störf út á land og þetta er enn eitt skrefið í þeirri vegferð.”

Eitt af markmiðum í vinnu við stofnanabreytingar ráðuneytisins er að fjölga störfum á landsbyggðinni. Sú niðurstaða hefur þó ekki þá þýðingu að starfsmenn viðkomandi stofnana þurfi að flytja sig um set í sínum störfum, heldur verða ný störf auglýst á nýju aðsetri viðkomandi stofnunar, eða öðrum starfsstöðvum hennar á landsbyggðinni.

Fjöldi fastra starfsmanna hjá nýrri Umhverfis- og orkustofnun og Náttúruverndarstofnun verður um eða yfir 100 manns hjá hvorri stofnun og eru stofnanirnar nú þegar með 20 fastar starfsstöðvar eða gestastofur víða um land, en starfsmenn nýrrar Náttúrufræðistofnunar eru um 80 talsins með starfsstöðvar í Garðabæ, Akranesi, Akureyri, Djúpavogi og við Mývatn. 

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum