Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Embætti forstjóra nýrra stofnana umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins auglýst laus til umsóknar

Aðsetur nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar verður á Akureyri, Náttúrufræðistofnunar á Vesturlandi og Náttúruverndarstofnunar á Hvolsvelli. 

Í kjölfar breytinga á stofnunum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins sem Alþingi samþykkti nýlega auglýsir ráðuneytið embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar, Náttúruverndarstofnunar og Umhverfis- og orkustofnunar laus til umsóknar. 

Embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar

Leitað er eftir leiðtoga til að setja á fót nýja faglega sterka stofnun og ná settum markmiðum í þágu rannsókna og vöktunar á íslenskri náttúru.

Náttúrufræðistofnun fer með  hlutverk og verkefni sem Náttúrufræðistofnun Íslands, Landmælingar Íslands og Náttúrurannsóknarstöðin við Mývatn höfðu áður.  Náttúrufræðistofnun mun efla faglegt starf á sviði gagnaöflunar, rannsókna, kortlagningar og vöktunar á náttúru Íslands. Aukinheldur er stofnuninni ætlað að  tryggja markvissa uppbyggingu gagnasafna og rannsóknainnviða með góðu aðgengi að gögnum og áreiðanlegum rauntímamælingum. Stofnunin mun leggja áherslu á öflugar grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir sem verði m.a. unnar á grundvelli samráðs milli stofnana. 

Náttúrufræðistofnun er ný stofnun sem starfar undir yfirstjórn umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun og náttúrustofur nr. 54/2024.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipar forstjóra Náttúrufræðistofnunar til fimm ára í senn. Forstjóri ber stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri og faglegri starfsemi stofnunarinnar og ábyrgð gagnvart ráðherra í samræmi við lög og skipurit stofnunarinnar. Starfsstöð forstjóra mun vera á Vesturlandi en starfsstöðvar stofnunarinnar eru víða um land.

Gert er ráð fyrir að forstjóri komi að mótun skipulags og innleiðingu nýs skipurits í sameinaðri stofnun. Hlutverk forstjóra mun felast að miklu leyti í breytingarstjórnun og sameiningarferli fyrstu árin og mótun helstu áherslna, verkefna og starfshátta stofnunarinnar.

Forstjóri Náttúrufræðistofnunar

Embætti forstjóra Náttúruverndarstofnunar

Leitað er eftir leiðtoga til að setja á fót nýja faglega sterka stofnun og ná settum markmiðum í þágu íslenskrar náttúru og almennings.

Náttúruverndarstofnun sinnir verkefnum á sviðum náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar, friðlýstra svæða, þ.m.t. þjóðgarða, vernd villtra fugla og spendýra og veiðistjórnunar. 

Náttúruverndarstofnun er ný stofnun sem starfar undir yfirstjórn umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum um Náttúruverndarstofnun sem samþykkt voru á Alþingi í júní sl. Ný stofnun mun taka til starfa 1. janúar 2025.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipar forstjóra Náttúruverndarstofnunar til fimm ára í senn. Forstjóri ber stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri og faglegri starfsemi stofnunarinnar og ábyrgð gagnvart ráðherra í samræmi við lög og skipurit stofnunarinnar. Forstjóri stofnunarinnar mun hafa starfsstöð á Hvolsvelli en starfsstöðvar stofnunarinnar eru víða um land.

Gert er ráð fyrir að forstjóri komi að mótun skipulags og innleiðingu nýs skipurits í sameinaðri stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar. Hlutverk forstjóra mun felast að miklu leyti í breytingarstjórnun og sameiningarferli fyrstu árin og mótun helstu áherslna, verkefna og starfshátta stofnunarinnar.

Forstjóri Náttúruverndarstofnunar

Embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar

Leitað er eftir leiðtoga til að setja á fót nýja faglega sterka stofnun og eiga veigamikinn þátt í  að Ísland  nái settum markmiðum í þágu loftslagsmála og sjálfbærrar nýtingu auðlinda.

Umhverfis- og orkustofnun fer með stjórnsýslu loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar, auk þess sem Raforkueftirlitið mun starfa sem sjálfstæð eining undir stofnuninni. Megintilgangur nýrrar Umhverfis- og orkustofnunar er að stuðla að því að markmið stjórnvalda í loftslagsmálum gangi eftir. Einnig að tryggja orku til orkuskipta, orkuöryggi, jafnt aðgengi að orku á landsvísu sem og vinna að eflingu hringrásarhagkerfis ásamt því að tryggja sjálfbæra nýtingu og heilnæmt umhverfi. Markmið nýrrar Umhverfis- og orkustofnunnar er auk þess  að veita vandaða þjónustu með skilvirkum ferlum, skýrri upplýsingamiðlun og ráðgjöf. 

Umhverfis- og orkustofnun er ný stofnun sem starfar undir yfirstjórn umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins samkvæmt lögum um Umhverfis- og orkustofnun sem samþykkt voru í júní sl. Ný stofnun mun taka til starfa 1. janúar 2025.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipar forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar til fimm ára í senn. Forstjóri ber stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri og faglegri starfsemi stofnunarinnar og ábyrgð gagnvart ráðherra í samræmi við lög og skipurit stofnunarinnar.  Starfsstöð forstjóra verður á Akureyri en stofnunin verður með starfsstöðvar víða um land.

Gert er ráð fyrir að forstjóri vinni að mótun skipulags og innleiðingu nýs skipurits í sameinaðri stofnun Orkustofnunar og hluta Umhverfisstofnunar. Hlutverk forstjóra mun felast að miklu leyti í breytingastjórnun og sameiningarferli fyrstu árin sem og mótun helstu áherslna, verkefna og starfshátta stofnunarinnar.

Forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar

Menntunar- og hæfniskröfur

Forstjórar nýrra stofnana þarf að búa yfir metnaði og framsýni til að leiða áfram nýja stofnun. Gerð er krafa um framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi og þekkingu á málefnasviði stofnunarinnar. Áhersla er lögð á farsæla stjórnunarreynslu og færni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi, vera agaður og skilvirkur í vinnubrögðum og búa yfir góðri hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á bæði íslensku og ensku.

Við mat á umsækjendum er miðað við kjörmynd stjórnenda út frá stjórnendastefnu ríkisins

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um stöðuna.

Umsóknafrestur er til og með 25.07.2024.

Upplýsingar um embættið veitir Stefán Guðmundsson, ráðuneytisstjóri umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, [email protected].

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum