Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2024 Matvælaráðuneytið

Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu undirrituð

F.v. Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvæalstofnunar, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Trausti Hjálmarsson formaður bændasamtakanna og Sigurborg Daðadóttir yfirdýralæknir. - myndSigurjón Ragnar

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra, Hrönn Ólína Jörundsdóttir forstjóri Matvælastofnunar og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, undirrituðu í dag landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu.

Áætlunin er unnin í sameiningu af stofnunum þremur og markar tímamót í þeirri baráttu sem átt hefur sér stað undanfarin 50 ár en talið er að sauðfjárriða hafi borist barst til Íslands árið 1878.

Drög að áætluninni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í maí sl. og bárust alls 17 umsagnir frá hagaðilum.

Áætlunin gerir ráð breyttri nálgun við útrýmingu riðuveiki frá því sem verið hefur, horft er frá því að reyna að útrýma riðusmitefninu sjálfu en megináhersla lögð á að útrýma veikinni með ræktun fjárstofns sem ber verndandi arfgerðir gegn smitefninu ásamt áframhaldandi aðgerðum til að hefta mögnun og dreifingu þess.

„Með þessum aðgerðum munum við treysta heilbrigði sauðfjár. Heilbrigði dýra er lykilþáttur í velferð þeirra, og við höfum af því allan hag að bæta umgengni okkar við dýrin sem við höldum til manneldis” sagði matvælaráðherra. „Þessi áætlun er því mikilvægt framfaraskref fyrir íslenskan landbúnað“.

Áætlunina má nálgast hér.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum