Hoppa yfir valmynd
9. júlí 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar Landspítala að hefjast

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, Karl Andreassen, forstjóri Ístaks, Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra og Guðrún Pétursdóttir, formaður Hollvina Grensásdeildar - mynd

Samningur um framkvæmdir við 4.400 fermetra nýbyggingu endurhæfingardeildar Landspíta við Grensás var undirritaður í dag. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í ágúst og ljúki á árinu 2026. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Karl Andreassen forstjóri Ístaks undirrituðu samninginn og vottar að honum voru Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala og Guðrún Pétursdóttir formaður Hollvina Grensásdeildar.

Samningurinn nær til uppsteypu burðarvirkja og fullnaðarfrágangs á ytra byrði og vinnu við innanhússfrágang. Nýbyggingin verður um 4.400 m2 og rís vestan við núverandi húsnæði. Þar verður aðstaða fyrir sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun með tengingum við núverandi byggingar. Í nýbyggingunni verður einnig ný 19 rúma legudeild og aðstaða fyrir sjúklinga, útisvæði og tómstundarými ásamt nýju eldhúsi og matstofu. 

Grensásdeildin leiðandi í endurhæfingu

„Grensásdeild er leiðandi í endurhæfingarþjónustu hér á landi og ég er sannfærður um að hið nýja húsnæði mun styðja vel það öfluga starf sem fram fer á Grensásdeild Landspítala á hverjum degi,“ sagði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra við undirritun samningsins.

Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri Nýs Landspítala sem heldur utan um verkefnið tók einnig til máls og sagði samninginn enn eitt skrefið í Grensásverkefninu um fullnaðarfrágang nýbyggingarinnar: „Jarðvinnuþátturinn og hönnunarstörfin gengu almennt vel og ber að þakka öllum þeim sem hafa komið verkefninu hingað á þennan stað. Það er engin bilbugur á neinum gagnvart markvissri uppbyggingu hér á þessum góða og mikilvæga stað.“

Karl Andreasson, forstjóri Ístaks: „Við hjá Ístak erum stolt af því að vera hluti af uppbyggingu Grensás verkefnisins. Það er ánægjulegt að taka þátt í verkefni sem þessu í þágu samfélagsins sem fellur vel að þeim verkum sem að við höfum unnið að í nær 55 ára sögu fyrirtækisins."

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum