Hoppa yfir valmynd
9. júlí 2024 Heilbrigðisráðuneytið

Heilbrigðisstofnun Vesturlands viðurkennd fyrir sérnámskennslu í bæklunarlækningum

Frá opnun skurðstofunnar á Akranesi 2022 - mynd

Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna hefur viðurkennt Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem kennslustofnun til að annast sérnám lækna í bæklunarlækningum, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala.

Heilbrigðisráðherra skipaði nýja mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna í mars 2024, í samræmi við reglugerð nr. 856/2023. Meðal verka mats- og hæfisnefndar er að meta hæfi heilbrigðisstofnana eða deilda innan þeirra til að öðlast viðurkenningu sem kennslustofnanir til að annast sérnám lækna, þ.m.t. sérnámsgrunn. Nefndin kom fyrst saman í apríl á þessu ári og hefur nú, eftir úttekt á starfsemi og kennslu, veitt bæklunarlækningum á Heilbrigðisstofnun Vesturlands viðurkenningu sem kennslusérgrein og kennsludeild, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala.

Ný skurðstofa tekin í notkun 2022

Haustið 2022 var ný og fullkominn skurðstofa fyrir liðskiptaaðgerðir tekin í notkun á Sjúkrahúsinu á Akranesi. Síðan þá hefur afkastageta stofnunarinnar í liðskiptaaðgerðum tvöfaldast en 357 liðskiptaaðgerðir voru framkvæmdar á Sjúkrahúsinu á Akranesi á árinu 2023 og hafa aldrei verið fleiri hjá stofnuninni. Árið 2021 voru framkvæmdar 155 slíkar aðgerðir.

 

  • Frá opnun skurðstofunnar á Akranesi 2022 - mynd

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta