Hoppa yfir valmynd
12. júlí 2024 Dómsmálaráðuneytið

Jákvæðir hvatar við sjálfviljuga heimför

Dómsmálaráðuneytið hefur gert breytingar á reglugerð um fjárhagsaðstoð við sjálfviljuga heimför útlendinga. Markmiðið með breytingunum er að skapa jákvæðan hvata fyrir umsækjendur um vernd frá Venesúela og öðrum ríkjum til að snúa til síns heima. Þannig verði létt álagi af verndarkerfinu og komið í veg fyrir að málarekstur dragist á langinn að óþörfu með tilheyrandi kostnaði.

Lög um fjárhagsaðstoð við sjálfviljuga heimför

Samkvæmt lögum er íslenskum stjórnvöldum þegar heimilt að greiða flugfargjald, ferðastyrk og enduraðlögunarstyrk til einstaklinga sem sótt hafa um vernd en ákveða að snúa sjálfviljugir til síns heima í samstarfi við stjórnvöld. Samkvæmt eldri reglum gat ferðastyrkur hæst orðið 200 evrur, enduraðlögunarstyrkur að hámarki 3000 evrur en viðbótarstyrkur að hámarki 1.000 evrur ef sótt var um áður en frestur til heimfarar var liðinn. Þannig gat útlendingur fengið að hámarki 4.200 evrur vegna sjálfviljugrar heimfarar.
Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar er lögð aukin áhersla á hvata til þess að hverfa heim áður en frestur til sjálfviljugrar heimferðar er liðinn. Þannig lækka styrkirnir í þrepum eftir því á hvaða tímapunkti viðkomandi ákveður að hætta málarekstri og kýs að fara heim sjálfviljugur.

Dæmi um einstakling sem þarf ekki vegabréfsáritun

Dæmi um fullorðinn einstakling frá ríki á borð við Venesúela sem þarf ekki vegabréfsáritun inn á Schengen svæðið:

  • Til þess að geta fengið 200 evru ferðastyrk og allt að 1.000 evru enduraðlögunarstyrk þarf viðkomandi að ákveða sjálfviljuga heimför.
  • Ef viðkomandi dregur umsókn til baka áður en Útlendingastofnun tekur ákvörðun eða ef hann kærir ekki úrskurð stofnunarinnar getur hann átt rétt á viðbótarstyrk allt að 1.500 evrum.
  • Ef kæran er ekki dregin til baka og sótt er um styrk til heimfarar eftir að neikvæð niðurstaða kærunefndar liggur fyrir, þá verður viðbótarstyrkur sem er í boði að hámarki 500 evrur.
  • Umsækjandi gæti misst allan rétt til styrkja ef hann ákveður ekki sjálfviljuga heimför áður en frestur til hennar er liðinn.

Skilyrði taka mið af aðstæðum einstaklinga

Tekið er tillit til þess að heimför til ákveðinna landa getur verið vandkvæðum bundin og því eru styrkir ekki miðaðir við sjálfa heimförina heldur þann dag sem viðkomandi óskar eftir aðstoð við sjálfviljuga heimför, enda verði viðkomandi ekki kennt um tafir á heimferðinni.
Umsækjendur frá Venesúlea sem koma til landsins eftir gildistöku reglugerðarinnar munu framvegis falla í sérstakan flokk C sem á eingöngu rétt á 500 evru enduraðlögunarstyrk. Það sama gildir um aðra umsækjendur sem eru ríkisborgarar ríkja sem eru undanþegnir skyldu til að hafa vegabréfaáritun.

Reglugerðarbreytingin í Stjórnartíðindum
Upplýsingar um fjárhagsaðstoð á vef Útlendingastofnunar 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum