Hoppa yfir valmynd
19. júlí 2024 Utanríkisráðuneytið

Föstudagspóstur 19. júlí 2024

Heil og sæl.

Hér kemur föstudagspóstur vikunnar.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra undirritaði nýjan samstarfssamning um kynningu á íslenskri myndlist erlendis með Ingibjörgu Jóhannsdóttur, safnstjóra Listasafn Íslands. Með samningnum er tryggt að íslensk myndlist verði áfram í öndvegi á sendiskrifstofum erlendis og grunnur lagður að framtíðarsamstarfi utanríkisráðuneytisins og listasafnsins. 

 

Aukið samstarf Íslands og Kanada um öryggis- og varnarmál á Norðurslóðum var til umfjöllunar á ráðstefnu (Canada-Iceland Seminar: Maritime Defence and Security in the North) sem haldin var nýverið í Ottawa. Ráðherra hitti Sviatlana Tsikhanouskaya, leiðtoga í stjórnarandstöðunni í Hvíta-Rússlandi. Hlynur Guðjónsson, sendiherra Íslands í Ottawa, flutti ávarp á ráðstefnunni.

Sumarlotu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna lauk í vikunni eftir fjögurra vikna fundarsetur og samningaviðræður. Ísland á í nánu samstarfi við Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin sem héldu uppteknum hætti og fluttu 29 sameiginleg ávörp í fundarlotunni. Umræður spönnuðu ólíka málaflokka, allt frá stöðu mannréttinda í einstaka ríkjum til umræðu um málfrelsi, umhverfismál og mannréttindi kvenna og stúlkna, barna og hinsegin fólks. Ísland flutti 11 ávörp fyrir hönd ríkjahópsins og kom flutningur tveggja þeirra í hlut Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra sem var stödd í Genf meðan á annarri viku fundarlotunnar stóð.  

Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Brussel, sótti óformlegan fund orkumálaráðherra ESB sem fór fram í Búdapest í vikunni ásamt Steinari Erni Kolbeins, aðstoðarmanns Guðlaugs Þórs umhverfisráðherra, og Árna Magnússonar, forstjóra Ísor. Á fundinum var rætt um að draga úr kolefnislosun frá orkukerfum og var umræðunni sérstaklega beint að jarðvarma.

Sendiráð Íslands í Lilongwe segir frá nýjum árangri í þróunarsamvinnuvekrefnum í Nkhotakota umdæminu í Malaví.

 

Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í London sótti hátíðlega athöfn þar sem breska þingið var sett í kjölfar kosninga í Bretlandi. Karl Konungur flutti þar hásætisræðu og gerði grein fyrir lagasetningaráformum nýrrar ríkisstjórnar.

Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, flutti ávarp á ráðstefnu UNWRA.

Þá flutti Ásta Bjarnadóttir, sérfræðingur um sjálfbæra þróun í forsætisráðuneytinu, ávarp á ráðherrafundi um sjálfbæra þróun í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna. Við ljúkum föstudagspóstinum að þessu sinni í Vín þar sem Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Vín og fastafulltúi gagnvart Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE), skrifaði undir yfirlýsingu um pólitíska fanga og stöðu mannréttinda í Hvíta-Rússlandi fyrir hönd Íslands ásamt fulltrúum 37 annara ríkja.

Fleira var það ekki að sinni.

Við óskum ykkur góðrar helgar.

Upplýsingadeild

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum