Hoppa yfir valmynd
15. ágúst 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Kynning á úthlutun styrkja Orkusjóðs 2024

Úthlutun Orkusjóðs á almennum styrkjum sem veittir verða til orkuskipta árið 2024 verður kynnt föstudaginn 16. ágúst kl.13.

Hægt verður að fylgjast með kynningunni í beinu streymi á vef Stjórnarráðsins.

Styrkir Orkusjóðs eru liður í aðgerðum stjórnvalda í loftslagsmálum og orkuskiptum og eru styrkflokkar í samræmi við stefnu stjórnvalda um að styðja við orkuskipti á landsvísu. Áhersla er lögð á vistvæna orkunýtingu, sem og að styðja við orkuskipti í samgöngum um land allt. Styrkveitingar þessa árs nema rúmlega 1,3 milljörðum kr. og hafa aldrei verið hærri.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, ávarpar fundinn og Haraldur Benediktsson, stjórnarformaður Orkusjóðs, kynnir úthlutanir sjóðsins.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum